Þriðjudagur 10. mars, 2026
2.8 C
Reykjavik

Hegðun Helga yfirlögfræðings ekki skilgreind sem „kynferðisleg áreitni“ – Þögn hjá Landsvirkjun

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Landsvirkjun neitar að gefa upp ástæður þess hvers vegna hið opinbera fyrirtæki skilgreindi mál Helga Jóhannessonar, fyrrum yfirlögfræðings, ekki sem kynferðislega áreitni. Málið var þess er stað flokkað undir óæskilega eða óviðurkvæmilega hegðun. Stundin greindi frá.

Helgi sagði upp starfi sínu hjá Landsvirkjun í lok október. Gerði hann það í kjölfar áminningar sem hann fékk vegna hegðunar í starfi. Helgi baðst á endanum opinberlega afsökunar á hegðun sinni.

Bauð konu að klípa sig í rassinn

Helgi kallaði meðal annars ítrekað samstarfskonu sína „lessulega“ fyrir framan aðra starfsmenn og þá er hann sagður hafa króað hana af úti í horni og strokið henni um vanga. Þá hafi Helgi beðið hana afsökunar og boðið henni að klípa sig í rassinn. Þá hefur lögmaðurinn einnig verið sakaður um frekari áreitni í fjölmiðlum.

Stundin spurði Landsvirkjun að því hvers vegna fyrirtækið hafi ekki skilgreint mál Helga sem kynferðislega áreitni. Það eina svar fékkst frá Landsvirkjun að fyrirtækið tjái sig aldrei um málefni einstakra starfsmanna.

Helgi var tilkynntur til yfir stjórnar Landsvirkjunar síðastliðið vor og sagði síðan sjálfur starfi sínu lausu.

- Auglýsing -

 

Svona hljómar skilgreining Landsvirkjunar á kynferðislegri áreitni: 

„Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, lítillækkandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg. Hugtakið kynferðisleg/kynbundið áreitni og ofbeldi nær yfir breitt svið háttsemi en eftirfarandi eru nokkur dæmi um athæfi sem eru sérstaklega ámælisverð: Óvelkomnir kynferðislegir tilburðir, tilboð eða kynferðislegar/kynbundnar athugasemdir, ummæli eða klúrt orðalag t.d. um klæðaburð. Þetta á einnig við samskipti í gegnum miðla eins og samfélagsmiðla og tölvupóst.  Óvelkomin kynferðisleg hegðun svo sem snertingar, klíp, klapp, káf, þukl eða strokur. Fara inn fyrir persónulegt rými einstaklings, m.a. með því að standa eða sitja of nálægt, halla sér að viðkomandi eða króa af.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -