Það kastaðist vægast sagt í kekki milli kraftlyftingamannanna Hafþórs Júlíusar Björnssonar og Eddie Hall á dögunum. Í myndbandi sem hefur farið eins og eldur í sinu um netheima má sjá mennina tvo nánast lenda saman eftir að hafa látið ýmis fúkyrðin fljúga. Að endingu sést Eddie Hall hrækja á Hafþór Júlíus, sem svarar í sömu mynt.
Mennirnir tveir munu mætast í bardaga um helgina en svo virðist sem þeir séu einnig andstæðingar utan hringsins og hafi komist nálægt því að fá forskot á sæluna.
Í myndbandinu standa mennirnir hvor ofan í öðrum og Eddie segir: „Ef þú fokking snertir mig þá bít ég af þér nefið. Komdu út fyrir og ég ríf af þér fokking hausinn. Fokking ræfill.“
Eftir einhver óp þeirra á milli þar sem Hafþór svarar fúkyrðum Eddie á svipaðan hátt, heyrist hann öskra: „Fokkaðu þér.“
Því næst hrækir Eddie á Hafþór og Hafþór hrækir til baka í kjölfarið.
Var augljóslega að skipuleggja þetta
Hafþór hefur tekið málið upp á Youtube-rás sinni. Hann segir Eddie hafa mætt óvænt á æfingasvæði sitt. „Ég var að búa mig undir að byrja að æfa þegar ég fæ skilaboð um að Eddie væri fimm mínútur í burtu,“ segir Hafþór. „Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri að fara að gerast. Eddie var augljóslega að skipuleggja þetta.“
Hafþór segir mikinn æsing hafa verið í þessu og að fúkyrðum hafi verið hreytt fram og til baka. Að lokum hafi þurft að draga Eddie út úr byggingunni og vill Hafþór meina að einhver hafi slasast í havaríinu.
„Ég hrækti vissulega til baka og ég er ekki stoltur af því, en ég var uppfullur af adrenalíni og var mjög brugðið yfir því að hann skyldi gera eitthvað svona ógeðslegt.“
Hann segir að þrátt fyrir allt hafi honum tekist að halda sér þokkalega rólegum.
„Ég hlakka til að stíga inn í hringinn með Eddie á laugardaginn svo við getum útkljáð þetta í eitt skipti fyrir öll, án þess að það breytist í ógeðslegan götuslag, sem er greinilega það sem Eddie var að falast eftir, miðað við augljósan skort hans á aga í atviki gærdagsins.“
Eddie Hall hefur nú viðurkennt að uppákoman hafi verið skipulögð fyrirfram. „Ég var beðinn um að fara þangað og hrista upp í hlutunum, svo ég gerði það,“ segir hann.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.
@SuppressedSikh Thor vs Eddie Hall first face-to-face 💀 pic.twitter.com/czbxONjrqj
— Sam (@roathy_) March 13, 2022

