Laugardagur 7. mars, 2026
1.8 C
Reykjavik

Gunnar Smári sleginn yfir frásögn í Bolholtinu: „Hvers vegna látum við bjóða okkur þetta?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, er sleginn yfir frásögn kunningja síns af tannlæknakostnaði dóttur hans. Gunnar Smári vekur máls á þessu í pistli á Facebook-síðu Sósíalistaflokksins.

„Þegar ég var að labba upp í Bolholt til að taka upp Rauða borðið hitti ég kunningja minn og dóttur hans á röltinu. Hann var eins og sleginn út af laginu, hafði orðið fyrir áfalli í tíma hjá tannréttingafræðing sem tjáði honum að reiknað væri með að meðferð fyrir dóttur hans kostaði eina og hálfa milljón.

Hann sagðist hafa spurt fræðinginn hvað fátækir foreldrar gerðu? Ekkert, þeir koma ekki hingað. Það er hægt að fá styrk frá Sjúkratryggingum upp á 150 þús. kr. en þá standa eftir 1.350 þús. kr. sem fólk ræður ekki við. Börn fátækra foreldra fá ekki tannréttingar.

Þegar kunningi minn var kominn heim sendi hann mér sms, sagðist hafa kannað hvernig þetta væri í Svíþjóð. Þar kosta tannréttingar barna ekki neitt. Tannréttingar fyrir fullorðna kosta 200 þús. kr.“

Gunnari Smára er bersýnilega nóg boðið.

„Hvers vegna látum við bjóða okkur þetta? Höldum við að Íslendingar eigi allt vont skilið?“

- Auglýsing -

Viðbrögðin við pistlinum láta ekki á sér standa og augljóst að fleirum en Gunnari Smára er nóg boðið yfir háum tannlæknakostnaði hérlendis.

„Fara til Póllands með stúlkuna. Marg borgar sig,“ segir Guðbjörg, en annar mælir heldur með Búdapest.

Þetta rímar við umfjöllun Mannlífs nýverið um mikla ásókn Íslendinga í tannlæknaþjónustu erlendis, þá sérstaklega í Austur-Evrópu. Ungverjaland og Pólland eru þar gjarnan efst á blaði.

- Auglýsing -

„Hér er græðgisvæðing og óeðlilegt verðlag farið að þvælast fyrir sjálfu sér. Íslenskir tannlæknar láta eins og þeir eigi ekki í samkeppni við erlenda tannlækna.

Ég mun í náinni framtíð þurfa að fá eins og 2-3 krónur. Hver einasta tönn myndi líklega kosta mig u.þ.b. milljón hérna heima. Eða ég get farið til Ungverjalands t.d. og látið gera þetta fyrir margfalt minni kostnað og þá er utanlandsferðin og allt umstang tengt henni einnig reiknað inn,“ segir Sveinbjörn.

Helga segir frá sinni reynslu sem foreldri drengs sem er að ljúka tannréttingaferli. Sonur hennar er 16 ára. „Við foreldrarnir erum búin að borga c.a. 25.000 kr í hverjum mánuði síðan hann var 13. ára. En við vorum kvödd með 140.000 kr reikning sem við fengum náðarsamlegast að skipta í tvennt, 1.des og 1.jan. Það verður meira lagt upp úr stemningu en efnislegu flippi þessi jólin.“

„Ég bý í Danmörku og heilbrigðiskerfið er í sköttunum til ríkisins. Þannig það er ekki ókeypis, við borgum í gegn um skattana, enda eru skattarnir mjög háir hér. Hér borga ég ekki krónu fyrir læknisheimsóknir og rannsóknir.

Skólatannlæknar sjá um krakkana og það er greitt af ríkinu. Svo já, hærri skatta og þá er eins og það sé hægt að við fáum “ókeypis”. Mjög gott að búa hér þrátt fyrir háa skatta, hef t.d aldrei borgað fyrir stílabækur eða námsbækur allan grunnskólann hjá mínum stelpum,“ segir Lára. Ágúst bendir þá á að skattar séu „ekki mikið hærri í Noregi og Danmörku. Fjarri því.“

Þórbergur bendir á nokkuð umhugsunarvert í samhengi við skatta og velferðarkerfi hér á Íslandi: „Við borgum líka fyrir þetta allt með okkar sköttum. Hins vegar erum við að keyra mun dýrara stjórnsýslukerfi miðað við mannfölda en er í Skandinavíu auk þess sem stjórnvöld hafa haldið fast utan um það að sposlur innan stjórnsýslunnar eru verulega mikið hærri og umsvifameiri hér en þar. Það leiðir til þess að við þurfum að greiða alls kyns aukagjöld umfram það sem gerist á hinum norðurlöndunum.

Skattar hér eru hins vegar ekkert lægri en hjá ykkur.“

„Þetta er svo sorglegt. Stéttaskipting endurspeglast í tannheilsu og ég gæti vel trúað að það hafi áhrif á atvinnutækifæri hvort manneskja er með beinar og fínar tennur eða skakkar og skemmdar,“ segir Guðný.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -