Sunnudagur 8. mars, 2026
1.7 C
Reykjavik

Guðrún var ringluð eftir ferð í Krónuna: „Ég er búin að þefa svo mikið af lærinu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðrún var ringluð eftir nýlega ferð í Krónuna og velti því fyrir sér hvort hún þyrfti hreinlega að henda vörunni sem hún keypti í ferðinni. Um var að ræða úrbeinað lambalæri sem hún óttaðist að hafi verið útrunnið þegar hún keypti það.

Guðrún velti málinu upp í fjölmennum hópi matgæðinga á Facebook, Matartips!. Þar leitar hún til meðlima um hvað hún eigi hreinlega að gera við lærið.

„Nú er ég ekki viss. Ég sá þetta fína úrbeinaða lambalæri í fyrradag í ,,síðasti séns“ kælinum í Krónunni með síðasta neysludag 25. nóv og keypti auðvitað á 50% afslætti.

Núna þegar ég er að taka utan af því og setja í ofninn sé ég að Krónan hefur sett annað lag af plasti yfir og þar stendur með pínulitlum stöfum að það sé 19. nóv,“ segir Guðrún og heldur áfram:

„Svo er þetta marinerað í drasl svo það er erfitt að finna lyktina af sjálfu kjötinu fyrir allri marineringarlyktinni. Vil ekki sjá fjölskylduna á dollunni með matareitrun. Ég er búin að þefa svo mikið af lærinu að ég er búin að missa lyktarskynið. Á ég að láta vaða og henda í ofn? Og af hverju ný dagsetning? Eða á ég bara að henda því?“

Fjölmargir meðlimir kvöttu Guðrúnu til að skella lærinu bara í ofninn á meðan aðrir gagnrýna viðskiptahætti Krónunnar. Sól Dögg er ein þeirra síðarnefndu. „Mér finnst þetta hljóma sem ákveðin vörusvik,“ segir Sól. Og Elísabet nokkur tekur undir. „Ég myndi tilkynna þetta sama hvort kjötið er ætt eða ekki!,“ segir Elísabet ákveðin.

- Auglýsing -

Sandra virðist hafa lent í svipuðu í Krónunni. „Hef 2 sinnum farið með úldið kjöt í Krónuna því þeir hafa fryst aftur , en þú átt að finna þetta á lyktinni fljótt ef úldið lambakjöt þolir oft að fara yfir síðasta dag, en ég myndi allan tímann fara frekar í Nettó þeir eru mikið betri í kjötinu, segir Sandra.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -