Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Guðni forseti sendir Grindvíkingum hlýjar kveðjur: „Vonum að allt fari vel“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, finnur vel fyrir jarðskjálftunum frá heimili sínu að Bessastöðum og sendir hann hlýja strauma til Grindvíkinga og nærsveitarmanna. Það gerir hann í færslu á Facebook þar sem hann birti myndbandið sem finna má hér neðar.

Náið er fylgst með Reykjanesskaganum og þeim hræringum sem þar eru. Jörð skelfur á skaganum og sá stærsti sem mælst hefur síðustu daga var 4.9 að stærð. Nýjar gervitunglamyndir staðfesta kvikusöfnun á Reykjanesskaga. Kvikan reynir að brjóta sér leið upp á yfirborðið, og veldur jarðskjálftum. Grannt er fylgst með svæðinu.

Guðni segist reglulega horfa yfir til Keilis og skjálftasvæðisins frá heimili sínu og vonar hann það besta.

„Ég vona að landsmenn hafi notið jólanna og sendi hlýjar kveðjur til Grindvíkinga og nærsveitamanna. Hér á Álftanesi finnum við skjálftana vel svo að auðvelt er að ímynda sér hversu snarpir þeir eru nær upptökunum. Vonum að allt fari vel, guð láti gott á vita. Frá Bessastöðum var fagurt um að litast í morgun og friðsælt yfir Keili.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -