Guðmundur Jónsson vélfræðingur er látinn en hann var 92 ára gamall. Mbl.is greindi frá andláti hans.
Guðmundur fæddist í Reykjavík árið 1932 og voru foreldrar hans Jón Jóhannes Ármannsson og Guðlaug Margrét Guðmundsdóttir.
Eftir að hafa lokið grunnskólanámi fór Guðmundur í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann lærði vélfræði. Hann var í starfsnámi hjá Vélsmiðjunni Héðni og lauk vélstjórnarprófi frá Vélstjóraskólanum í Reykjavík. Hann starfaði lengi á sjó en var lengst af vélfræðingur hjá Vatnsveitu Reykjavíkur.
Guðmundur var mikill skíðagarpur og keppti fyrir KR í íþróttinni og vann til verðlaun á þeim vettvangi. Hann var síðar sæmdur heiðursmerki KR. Hann var sömuleiðis virkur þátttakandi í stjórnmálum og tók þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins í Bústaðahverfi.
Guðmundur lætur eftir sig fjögur börn.
Guðmundur Jónsson er látinn

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
