Ótal mörg svekkt og sorgmædd börn yfirgáfu Ikea í dag með fangið tómt en verslunin auglýsti páskaeggjaleit sem átti að fara fram alla helgina.
Það tók um klukkutíma fyrir öll eggin í búðinni að klárast en þau voru í heildina um hundrað talsins. Ekki var bætt við fleiri eggjum.
Margir eru ósáttir við þetta og voru ófáar athugasemdir undir Facebook færslu fyrirtækisins þar sem leitin var auglýst, foreldrar og aðrir viðskiptavinir horfðu upp á grátandi börn yfirgefa verslunina. Búið var að flegja vörum til og frá enda spennt börn að leita að súkkulaði, það var þó ekkert slíkt að finna.
Einn viðskiptavinur fór klukkan 11 í morgun og byrjaði að leita með þremur börnum, eftir tveggja og hálfs tíma leit gáfust þau upp.


