Laugardagur 14. mars, 2026
-0.2 C
Reykjavik

Glúmur Baldvinsson: „Mitt líf er hrunið og verður aldrei samt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Mitt líf er hrunið og verður aldrei samt,“ segir Glúmur Baldvinsson og er algjörlega niðurbrotinn eftir tap sinna manna í Manchester United gegn nýliðum Watford; United skoraði eitt mark en nýliðar Watford fjögur.

Glúmi líður illa, og svo er um marga stuðningsmenn stærsta og goðsagnakenndasta knattspyrnuliði heims – Manchester United.

„Ég mun aldrei dansa aftur eða líta himininn sömu augum. Bara sorti framundan í göngum sem hvergi enda eftir þennan dag. Ég þarf enga huggun enda hvergi hægt að hugga mann án net og símasambands týndur í allsherjar myrkviði og gleyptur af svartholi.“

Lokaorðin segja allt sem segja þarf um ástandið á Old Trafford og ástand Glúms:

„4 – 1. Eru menn að grínast í mér? Hvernig er hægt að tapa 1 – 4 á móti einhverju liði sem enginn nútímamaður eða homo sapiens kannast við? Watford my arse. Þetta er búið. Hér skrifa ég ekki meir.

Góða nótt.

- Auglýsing -

Vegni ykkur hinum eftirlifandi vel. Mína eina huggun er sú að það var gleðilegt að kynnast ykkur um stund.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -