Hinn tvítugi Gabríel Duoane Buma, sem slapp úr haldi lögreglu í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem aðalmeðferð í máli hans fór fram, er enn ófundinn. RÚV greinir frá þessu. Gabríel á að baki þó nokkurn sakaferil og hefur verið dæmdur fyrir alvarleg ofbeldisbrot. Hann er meðal annars sagður tengjast árás í Borgarholtsskóla í janúar í fyrra.
Samkvæmt RÚV er lögregla meðal annars með það til skoðunar að flóttinn hafi verið skipulagður. Gabríel sleit sig lausan frá lögreglu í Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem aðalmeðferð í máli á hendur honum fór fram. Lögregla náði ekki að hlaupa hann uppi og var mikill viðbúnaður í miðbænum í gær vegna málsins. Gabríel hafði verið í síbrotagæslu undanfarið vegna fjölda ofbeldisbrota og fíkniefnabrota.
Kristján Helgi Þráinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir lögreglu sinna sjálfstæðri rannsóknarvinnu auk þess að elta vísbendingar frá almenningi. Gabríel birti mynd af sér á samfélagsmiðlum í gær þar sem hann sagðist vera í Vesturbæ Reykjavíkur. Lögreglu hefur enn ekki tekist að sannreyna það.
Kristján Helgi segir að hægt sé að líta á Gabríel sem hættulegan, þar sem hann hann sé kærður fyrir margvísleg ofbeldisbrot. Til að mynda var hann dæmdur í átján mánaða fangelsi í febrúar í fyrra fyrir að hafa hótað lögreglumönnum lífláti og fyrir líkamsárás sem þótti sérstaklega hættuleg. Hann er einnig grunaður um alvarlega líkamsárás sem var framin í Borgarholtsskóla í janúar á síðasta ári. Á vef RÚV segir að hann sé grunaður um hátt í fimmtíu brot.
Hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hvort flótti Gabríels hafi verið skipulagður. Þeir sem telja sig hugsanlega hafa upplýsingar um ferðir hans eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.

