Föstudagur 8. maí, 2026
4.8 C
Reykjavik

Flugvélin hífð upp úr Þingvallavatni á föstudaginn – Mikill viðbúnaður væntanlegur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Reyna á að hífa flugvélina TF-ABB upp úr Þingvallavatni næstkomandi föstudag. Frá því að ís hvarf af Þingvallavatni hefur undirbúningur staðið yfir.

Á morgun er gert ráð fyrir að unnið verði að uppsetningu vinnubúða vegna björgunaraðgerða, samkvæmt Sunnlenska.is. Þar segir að tjaldbúðir verði settar upp en þar verður aðstaða fyrir björgunarmenn og öryggisbúnaður vegna köfunar. Þá verður Björninn á vettvangi en það er fjarskipabíll Landsbjargar, svo tryggja má fjarskipti. Aukinheldur verða prammar nýttir sem aðstaða úti á vatninu og til að hífa flugvélina af botni Þingvallavatns og færa í land.

Sjá einnig: Harmleikur á Þingvallavatni: Flugvélin fannst í sunnanverðu vatninu

Áætlað er að aðgerðir á svæðinu byrji með sjósetningu og prófunum á tækjabúnaði kl. 9 á föstudagsmorgun. Óviðkomandi ökutækjum er ekki heimilt að keyra á slóðanum að svæðinu í dag, vegna aðstæðna.

Frá klukkan 8:00 á föstudagsmorgun verður ekki heimilt að fljúga yfir svæðið, þar til aðgerðum er lokið en það er lögreglustjórinn á Suðurlandi sem tók þá ákvörðun. Lögreglan mun nota dróna sína við aðgerðina og einnig mun þyrla Landhelgisgæslunnar vera í viðbragðsstöðu til flugs á vettvang ef ástæða þykir til.

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -