Fertug íslensk kona er í gæsluvarðhaldi á Tenerife á Spáni grunuð um að hafa ráðist á mágkonu sína og tengdamóður í síðustu viku en Vísir greinir frá. Málið hefur ekki komið á borð borgaraþjónustunnar.
Konan á að hafa ráðist á konurnar seint á föstudagskvöldi eftir að hafa farið í uppnám að sonur hennar væri ennþá vakandi. Konan hafi ráðist fyrirvaralaust á mágkonu sína og tengdamóður og meðal annars hent í þær vínglösum og hent þeim í gólfið. Þá hafi konan einnig hrint tengdaföður sínum í gólfið.
Í gögnum sem Vísir hefur kom bróðir konunnar á vettvang og náði að róa hana en tengdamóðirin á að hafa skorist á vinstri framhandlegg. Þá hafi herbergið sem árásin átti sér stað í að vera þakið blóði.
Einnig er tekið fram að konan þjáist að geðhvarfasýki og sé á lyfjum vegna þess.
Fertug íslensk kona handtekin eftir blóðuga árás á fjölskyldu sína

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
