Tveir aðilar voru fluttir á bráðamóttöku eftir alvarlegt bílslys á Breiðholtsbraut seint í gærkvöld. Annar aðilinn er sagður alvarlega slasaður eftir að tveir bílar skullu saman. „Þetta gerist í gær um hálf tólf um kvöldið. Tveir aðilar fluttir á spítala á bráðamóttöku, annar þeirra alvarlega slasaður,“ sagði Árni Friðleifsson aðalvarðstjóri í samtali við Mannlíf nú skömmu fyrir hádegið. Aðspurður á hvaða aldri fólkið var sagði hann: „Þetta eru ungir einstaklingar.“ Í tilkynningu frá lögreglu í morgun kom fram að alls hafi fjórir aðilar verið í bifreiðunum. Þá hafi verið slökkvilið verið kallað út til þess að ná ökumanni úr annarri bifreiðinni.
Fréttin verður uppfærð.
Einn alvarlega slasaður eftir slysið á Breiðholtsbraut: „Þetta eru ungir einstaklingar“

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
