Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar var í morgun sakfelldur í héraðsdómi í máli ríkisins geng honum. Var hann dæmdur sekur um skattsvik og peningaþvætti í rekstri þriggja einkahlutafélaga sem öll hafa orðið gjaldþrota og verið afskráð.
Var Sverrir Einar fundinn sekur um skattsvik og peningaþvætti í rekstri fyrirtækjanna BHG, Jupiter gisting og Sogið veitingar. Þótti sannað að Sverrir hefði gerst brotlegur um meiriháttar brot gegn skattalögum og peningaþvætti með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum félaganna á lögmæltum tíma, virðisaukanum sjálfum, ekki skilað staðgreiðslu opinberra gjalda og staðgreiðsluskilagreinum vegna þeirra.
Samkvæmt heimildum Mannlífs var Sverrir Einar dæmdur til að greiða 60 milljónir króna sekt til ríkissjóðs.
Hvorki náðist í Sverri Einar né verjanda hans við gerð fréttarinnar.

