„Alkavinir mínir sem eru öflugastir, það er eiginlega samdóma álit eins og einn góður maður sagði: Nei Erpur er enginn alkóhólisti, hann er ofdrykkjumaður,“ segir Erpur Eyvindarson, rappari og sjónvarpsmaður, í samtali við Sigurlaugu M. Jónasdóttur í þættinum Okkar á milli á RÚV.
Erpur hefur í gegnum tíðina, allt frá því hann gekk til liðs við XXX Rottweilerhunda, rappað töluvert um romm og skemmtanalíf. Í dag er hann hins vegar hættur að drekka – í bili, að eigin sögn.
Erpur segir ástæðuna fyrir þurrkinum vera drungi fyrstu mánaða ársins. Hann segist einfaldlega ekki nenna að drekka þá mánuði. „Það er D-vítamínskortur, maður er þreyttari og pirraðri en fólk þarf ekkert að fara að hengja sig eða éta einhver pilluspjöld, þetta er bara D-vítamínskortur.“
Hann segir alla vini sína vera alkóhólista – helmingur virkur og hinn helmingurinn óvirkur. Hann telur það þó ekki endilega eiga við hann sjálfan.
„Mig langar í raun ekkert í áfengi en þegar mig byrjar að langa í áfengi, það er venjulega með vorinu. Þess vegna er ég rólegur þangað til í vor,“ segir Erpur, kampakátur.

