Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, hefur nú blandað sér inn í sjóðheita samfélagsumræðuna um kynferðisbrot hér á landi. Hann telur að tekin hafi verið gífurlega mikilvæg skref gegn þöggun samfélagsins og segir svo mikið í húfi að ekki megi missa stjórnina á umræðunni.
Biggi ritar skoðuna sína í langri færslu á Facebook. Við skulum hreinlega gefa honum orðið og hér kemur færsla hans í heild sinni:
„Það skref sem samfélagið tók að færa kynferðisbrot inn í umræðuna var gífurlega mikilvægt. Það hefur breytt umræðunni, opnað hana og viðurkennt alvarleg brot á einstaklingum sem áður voru þögguð. Ég er sannfærður um að þessi vegferð hafi og muni breyta því hvernig mögulegir gerendur hugsa og hegða sér í framtíðinni og mun þannig forða fjölda fólks frá því að verða fyrir slíku ofbeldi og jafnvel bjarga manslífum. Þetta hefur líka breytt kerfinu sjálfu.
Það skiptir samt auðvitað máli að við lærum líka hvernig við ræðum þessa hluti. Að við séum þakklát fyrir skrefin sem tekin hafa verið en þorum að vera gagnrýnin á það sem við getum gert betur. Eitt af því sem við verðum að læra er hvernig börnin sjá þetta. Stærsti og viðkvæmasti hóp samfélagsins. Þau sem fæddust inn í heim samfélagsmiðla og opinberrar umræðu á netinu. Þau eru að læra af okkur á meðan við erum sjálf að læra að ganga.
Börn geta líka verið gerendur í ofbeldismálum hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt. Í þeim málum skiptir öllu að grípa inn í strax og aðstoða alla aðila, þolendur og gerendur. Við höfum samt pínu kennt þeim að það sé eðlilegt og samþykkt að nafngreina einstaklinga og taka þátt í að dreifa sögum af því sem einhverjir kunna að hafa gert. Þegar kemur að börnum er slíkt aldrei í boði. Aldrei. Þá verðum við alltaf að geta komið málinu hratt og örugglega í þann farveg að hlutaðeigandi aðilar fái alla nauðsynlega aðstoð. Slík aðstoð er svo sannarlega til staðar en hún fæst aldrei í gegnum samfélagsmiðla og opinbera umræðu. Með því að opinbera viðkvæm mál sem viðkoma börnum á slíkan hátt er aðeins verið að gera erfið mál enn erfiðari fyrir alla. Ekki bara mögulega gerendur, heldur líka þolendur, fjölskyldur þeirra, þá sem taka þátt í að dreifa upplýsingum, hóta, senda niðrandi skilaboð og fleira.
Svona heit mál eru oft fljót að vinda upp á sig í umræðunni. Auk reiði getur byggst upp misskilningur, sannleikurinn jafnvel breyst og þeir sem taka þátt finna sig undir pressu til að viðhalda stöðu sinni og sannfæringu. Hver einasti einstaklingur, hvert einasta barn, sem snertir á málinu er allt í einu orðinn þáttakandi með ófyrirséðum afleiðingum.
Börnin okkar eru framtíðin en við erum að búa til gatnakerfið í þessari framtíð. Þau börn sem brjóta á öðrum börnum þurfa umfram allt aðstoð, ekki refsingu. Þannig verður samfélagið okkar að virka. Því bið ég ykkur um að ræða þetta við börnin ykkar. Ef einhver brýtur á þeim eða ef þau telja sig vita að slíku máli verða þau að geta leitað til okkar eða annars fullorðins einstaklings sem þau geta treyst. Þau verða að geta komið málinu í réttan farveg. Það er ekkert óeðlilegt að þau telji að hefnd eða opinber dreifing sé rétt leið. Þau sjá það í kringum sig. Við verðum að axla þá ábyrgð að koma þeim skilaboðum til þeirra að slíkt er aldrei lausn þegar önnur börn eða unglingar eiga í hlut. Slíkt er einungis skaðlegt og getur verið beinlínis hættulegt. Og þið fullorðnu sem takið þátt í að hóta eða niðurlægja börn vegna mála sem þið heyrið af eða tengist. Vinsamlegast hætti því nú þegar. Þið eruð einungis að gera illt verra fyrir alla aðila og eruð að sýna ömurlegt fordæmi.
Ef barn eða unglingur hefur orðið fyrir eða telur sig hafi orðið fyrir einhverskonar ofbeldi eða áreitni þá er t.d. hægt fá aðstoð með því að;
-Hafa samband við 112 í gegnum síma, netspjall eða appið.
-Hringja í neyðarsíma Rauðakrossins 1717
-Ræða við kennara, skólahjúkrunarfræðing eða starfsmann félagsmiðstöðvar
-Hafa samband við Bergið headspace
-Senda ábendingu á barnaheill.is.
Það er einnig hægt að tilkynna ef einhver veit að kynferðislegu ofbeldi eða vitað sé að einhver beiti því.
Það er of mikið í húfi til að við missum stjórnina á þessu. Tökum stjórnina saman og beinum þessu í réttan farveg. Við erum alltaf að læra.“

