Laugardagur 7. mars, 2026
2.8 C
Reykjavik

Ásta var í áfalli í Vesturbænum: „Mér brá alveg svakalega“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ástu nokkurri, íbúa í Vesturbænum í Reykjavík, brá heldur betur í brún í gærmorgun þegar snjóruðningstæki á vegum borgarinnar ók á ógnarhraða nærri heimili hennar. Átti hún fótum sínum fjör að launa með 5 ára tvíbura sína.

Ásta varar við ógnarhraða snjóruðningstækjanna í hópi hverfisbúa á Facebook. Þannig lýsir hún upplifun sínni:

„Langar að biðja alla að vara sig á snjóruðningstækjum sem hreinsa gangstéttir hverfisins. Í morgunmyrkrinu munaði engu að ég og tvö ung börn mín hefðum orðið fyrir einu slíku þar sem við vorum að feta okkur niður hálar útidyratröppurnar hér á Reynimel,“ segir Ásta og heldur áfram:

„Engar viðvörunarbjöllur hringdu heldur kom það fyrirvaralaust og æddi áfram eins og hraðlest. Álengdar sá ég mann með hund hrökklast frá og var okkur öllum mjög brugðið. Þetta er hrikalegt! Mínir tvíburar, fimm ára, eru einmitt vanir að skottast á undan, en sem betur fer gerðist það ekki í dag.“

Fjölmargir íbúar hverfisins blanda sér í umræðuna og langflestir þeirra virðast hafa upplifað sömu ógnun af hálfu snjóruðningstækjanna. Nanna er ein þeirra. „Lenti svipuðu um daginn á Víðimel. Sem betur fer var ég bara nýbúin að stíga út fyrir hurðin með snáðann minn sem er einmitt vanur að hlaupa niður tröppurnar á undan mér. Mér brá alveg svakalega að sjá hraðan á þessu risatæki á gangstéttinni,“ segir Nanna.

Halldóra hefur svipaða sögu að segja. „Takk fyrir að vekja máls á þessu. Ég fann eitt svona tæki nálgast mig aftan frá á (því sem mér fannst a.m.k.) ógnarhraða við Bókhlöðuna í morgun. Virkilega óþægilegt,“ segir hún. Og það gerir Kristjana líka. „Ég hef einmitt lent í þessu á Reynimelnum (og reyndar víðar), með þá leikskólabörnin tvö hlaupandi á undan mér upp gangstéttina. Mjög óþægilegt og stórhættulegt,“ segir Kristjana.

- Auglýsing -

Líf Magneudóttir borgarfulltrúi blandar sér inn í umræðuna og þakkar fyrir innleggið. Hún ætlar að taka á málinu. „Mikilvægt að koma þessu til skila og láta vita. Það er óboðlegt að fólki stafi hætta af snjóruðningi og sér í lagi þar sem það er á gangstéttum þar sem það á að vera öruggt. Takk fyrir að láta vita. Ég ætla einnig að hafa samband við mitt fólk á sviðinu,“ segir Líf.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -