Fimmtudagur 14. maí, 2026
4 C
Reykjavik

Arnar Grant kominn aftur í World Class: „Ég er að reyna að hafa mig í gang aftur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lítið hefur heyrst frá Arnari Grant síðan Vítalía Lazareva steig fram með frásögn sína af kynferðisofbeldi af hálfu fjögurra vina Arnars, en þau Vítalía áttu í ástarsambandi um hríð. Hún hefur nú lagt fram kæru á hendur þremur þeirra, þeim Þórði Má Jóhannessyni, Ara Edwald og Hreggviði Jónssyni.

Samkvæmt heimildum er Arnar kominn aftur til starfa hjá World Class, en hann fór í leyfi eftir að viðtal við Vítalíu kom út í hlaðvarpinu Eigin konur, þar sem hún sagði sögu sína.

„Ég er að reyna að hafa mig í gang aftur,“ segir Arnar aðspurður um endurkomu hans til starfa, þegar blaðamaður Mannlífs sló á þráðinn til hans fyrir nokkru. „Þetta hefur auðvitað haft mikil áhrif á mig og maður er svona að reyna að safna sér saman.“

Þegar blaðamaður hefur á orði við Arnar að erfitt hafi reynst að ná í hann á sínum tíma þegar viðtalið kom út, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, segir hann tímann einfaldlega ekki hafa verið réttan. „Það voru ekki aðstæður til.“

Aðspurður hvort hann vildi tjá þig um málin á þessum tímapunkti segist hann ekki viss um að þetta sé eitthvað sem eigi að ræða í fjölmiðlum. „Mér finnst þetta ekki vera eitthvað til að bera á borð fyrir almenning. Ég er ekkert tilbúinn til þess að tjá mig um þetta neitt.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -