Föstudagur 6. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Anna Kristjáns hraunar frá Tenerife yfir rammíslenska hefð: „Hryðjuverk sem ætti að banna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Vélstjórinn Anna Kristjánsdóttir er þeirrar skoðunnar að kæst skata sé skemmdur viðbjóður og át á henni sé ekkert annað en sjálfspíningarhvöt. Þar sem hún er búsett á Tenerife skilur hún ekkert í þeim fjölda Íslendinga sem þangað eru komnir yfir hátíðirnar og ætla að skella sér í skötuveislu á íslenskum bar á eyjunni.

Anna opnar sig um kæsta skötuna í færslu á Facebook og segist sannfærð um að hún verði tekin á lífi fyrir skrif sín. Við skulum skoða hvað hún hefur að segja um skötuna:

„Það hefur aldrei farið á milli mála að ég hefi ekki lagt í vana minn að éta kæsta skötu og er hjartanlega sammála formanni Félags húseigendafélagsins sem líkir skötufnyknum við hryðjuverk sem ætti að banna að elda í fjölbýlishúsum. Að auki sitja enn í minningunni fréttatímarnir í sjónvarpinu sem voru nánast árvissir þar sem Finnbogi Hermannsson var sýndur éta þennan viðbjóð svo að stóðu beingarðarnir útum bæði munnvik sem var auðvitað nóg til að ég skipti yfir á aðra sjónvarpsstöð eða slökkti á sjónvarpstækinu. Hræðileg minning. Sumir kalla át á þessum skemmda viðbjóði skötuveislu og sanna karlmennsku. Ég kalla þetta masókisma eða sjálfspíningarhvöt.

Ég vil einnig nefna kollega minn og fyrrum vinnufélaga, Vestfirðing sem segist hafa verið rekinn frá Vestfjörðum vegna þess að hann borðaði ekki kæsta skötu. Engin nöfn nefnd, en samt góður félagi sem nýlega hefur einnig kvatt vinnustaðinn góða.

Bretarnir vinir mínir í blokkinni þar sem ég bý myndu aldrei taka í mál að ég eldaði úldna skötu heima hjá mér. Ég yrði sennilega gerð útlæg úr blokkinni ásamt Önnubar med det samme. Eins gott að ég var búin að borga húsaleiguna fyrir janúar 2022.

Ég veit að ég verð tekin af lífi í íslenskum fjölmiðlum í dag vegna sannleikans um viðbjóðinn sem kallast kæst skata, en svona er hreinskilnin, en þessir 5000 skötuflóttamenn eru samt velkomnir til Paradísar. Ég elska ykkur samt.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -