Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að vegna kerfisbilunar hjá Microsoft, hafi truflanir orðið í nótt og í morgun á ýmsum þjónustuþáttum bankans. Áhrifin voru þau að netbankinn og appið lágu niðri, ekki var hægt að nota hraðbanka og takmörkuð þjónusta var í boði í útubúum og þjónustuveri. Greiðslukort bankans virkuðu sem fyrr en mögulega hafði bilunin áhrif á þjónustuaðila sem gat valdið truflunum á notkun kortanna. Um leið og bilunarinnar varð vart hófst vinna í bankanum við að draga úr áhrifum hennar. Appið og netbankinn urðu aftur aðgengileg um klukkan 10.00 og þjónusta bankans var að mestu komin í samt lag um klukkan 10.30 en mögulegt er að hægagangur verði í ákveðnum þáttum starfseminnar fram eftir degi. „Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem viðskiptavinir urðu fyrir,“ segir að lokum í tilkynningu Landsbankans.
Alþjóðlega kerfisbilunin – Þjónusta Landsbankans komin í lag

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
Aftur er hægt að nota netbanka, app og hraðbanka Landsbankans, eftir að alþjóðleg kerfisbilun olli vandræðum í nótt og í morgun.
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
