Fimmtudagur 5. mars, 2026
-0.2 C
Reykjavik

Almars Yngva enn leitað – Björgunarsveitir kallaðar út

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Enn hefur leit lögreglu að Almari Yngva Garðarssyni, sem lýst var eftir í gær, engan árangur borið.

Þetta segir í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag.

Lítið er vitað um ferðir Almars, annað en að hann hafi verið á ferðinni í Hafnarfirði milli klukkan tvö og þrjú aðfaranótt sunnudags.

Almar er með gráa Chevrolet Spark bifreið til umráða með bílnúmerinu HUX90.

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi hafa verið kallaðar út til aðstoðar við leitina, auk Landhelgisgæslunnar.

Almar Yngvi Garðarsson er 29 ára gamall. Hann er 190 sentímetrar á hæð, grannur, með dökkt hár og skeggrót. Hann er talinn klæddur í hvíta hettupeysu, svart 66°Norður vesti og gráa íþróttaskó.

- Auglýsing -

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Almars eru beðnir um að hafa strax samband við lögregluna í síma 112.

Bifreiðin sem Almar Yngvi hefur til umráða.
Bifreiðin er af tegundinni Chevrolet Spark.
[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -