Allar átta sundlaugar Reykjavíkurborgar hafa hlotið regnbogavottun en samkvæmt borginni er markmið regnbogavottunar er að gera starfsemi Reykjavíkurborgar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og þannig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.
Sjö af átta hafa sérklefa og stendur til að bæta slíkum í Klébergslaug.
„Sérklefar eru sérstaklega ætlaðir til að taka vel á móti trans fólki (og börnum), þar með talið kynsegin og intersex fólki (og börnum), foreldrum fatlaðra barna og barna sem þurfa sérstaka aðstoð og eru af öðru kyni, fötluðu fólki með aðstoðarmann af öðru kyni, börnum að aðstoða foreldra sem eru af öðru kyni og fólki með heilsufarsvanda, svo sem stóma,“ segir í tilkynningu frá Reykjavík.
Til þess að fá regnbogavottun þurfa starfsstaðir að gangast undir ferli sem hægt er að lesa um hér fyrir neðan.

Allar sundlaugar borgarinnar hafa hlotið regnbogavottun

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
