Sunnudagur 10. maí, 2026
5.8 C
Reykjavik

Aðalheiður fordæmir fljótfærni meintra geranda: „Sumir hafa eflaust bölvað afsökunarbeiðnum þeirra“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Aðalheiður Ámundadóttir, fréttastjóri Fréttablaðsins, segir fólk vera of fljótt að biðjast afsökunar án þess að „staldra við og hugsa af yfirvegun um hvort þau sjái yfir höfuð eftir orðum sínum eða gjörðum.“

Aðalheiður rifjar upp eitt slíkt tilfelli þar sem rithöfundirinn Hallgrímur Helgason sagði landsbyggðina vera hamfarasvæði þegar um tuttugu innflytjendur frá Írak settust að á Súðavík, Ísafirði, Neskaupstað og Reyðarfirði. ,,Þetta er hálf galið, verður að segjast, við fáum fólk frá hamfarasvæðum, hvert sendum við það? jú, á okkar eigin hamfarasvæði, þar sem enginn Íslendingur vill lengur búa… Þetta er svo brútalt,“ skrifaði Hallgrímur á Twitter síðu sinni. Hann baðst síðar afsökunar á þessum ummælum.

Aðalheiður tekur annað dæmi sem er afsökunarbeiðni Ágústar Ólafs Ágústssonar, þáverandi þingmanns Samfylkingarinnar, en hann hlaut mikla gagnrýni fyrir að gefa til kynna að Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, réði ekki í sinni eigin ríkisstjórn. Svandís Svavarsdóttir sagði ummælin vera kvenfyrirlitningu.

Að lokum segir Aðalheiður að sama sé að segja um Will Smith, sem er búinn að vera mikið í sviðsljósinu síðan hann sló Chris Rock á Óskarnum fyrir ósmæmilegt grín Chris í garð eiginkonu Will sem glýmir við sjálfsofnæmissjúkdóm. Will Smith baðst afsökunar opniberlega á gjörðum sínum.“ Hún var að mati okkar fróðasta fólks hlaðin eitraðri karlmennsku. Nú situr hann upp með þessi tvö vandamál: Löðrunginn og hina eitruðu karlmennsku. Og við vitum ekki enn hvort hann hefur í rauninni fyrirgefið grínistanum hinn smekklausa brandara,“ skrifar Aðalheiður.

Sáttamiðlun er ferli sem komið hefur verið á fót í réttarkerfum víða í Evrópu. Hugmyndin er sá eða sú sem gerir á hlut annarrar manneskju öðlist skilning á afleiðingum gjörða sinna og þolandinn fái tækifæri til að lýsa áhrifum þeirra á sig. Markmiðið er að ná raunverulegum sáttum. Hefur þetta í mörgum tilvikum gefist betur en fordæming og fangelsisdómur.
Hraðinn í mannlegu samfélagi er orðinn slíkur að við erum hætt að gefa okkur tíma til að vinna vinnuna sem þarf til að ná sáttum. Niðurstaðan er að allir eru jafnósáttir þegar málinu lýkur, bæði sá sem framdi glæpinn og allur heimurinn sem fordæmir hann,“ segir í leiðaranum.

Greinina má lesa í heild sinni hér.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -