Föstudagur 8. maí, 2026
4.8 C
Reykjavik

Aaron sviptur sigurtitlinum í Söngkeppni eftir kynferðisbrot gegn ungum drengjum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Aaron Ísak Berry hefur verið sviptur sigurtitli Söngkeppni framhaldsskólanna 2019 en kom þetta fram í tilkynningu frá stjórn SÍF. Aaron var fyrir stuttu sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn þremur drengjum auk þess að hafa haft barnaníðsefni undir höndum. Þá kom einnig fram í dómnum að Aaron væri töluvert seinþroska og talið var betra að hann væri undir eftirliti lækna á réttargeðdeild heldur en að afplána dóm í fangelsi.

Ákvörðun SÍF var tekin í kjölfar dómsins en í yfirlýsingu þeirra segir meðal annars:
„Afstaða SÍF gegn kynferðisofbeldi, þá sérstaklega gagnvart börnum, er skýr. Nafn Arons verður fjarlægt af lista sigurvegara á vefsíðu SÍF, neminn.is, og verður hann ekki talinn hluti af hópi sigurvegara keppninnar.“
Hvetja þau þolendur kynferðisofbeldis að leita sér hjálpar.

„SÍF vill nota tækifærið til að hvetja alla þolendur kynferðisofbeldis til að leita sér hjálpar með því að hringja í síma 112, nýta netspjall Rauða krossins á 1717.is, eða leita til neyðarmóttöku Landspítalans fyrir þolendur kynferðisofbeldis sem er opin allan sólarhringinn og hægt er að hringja í síma 543-1000.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -