Lokathöfn alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Clermont-Ferrand í Frakklandi var haldin með pompi og prakt í gærkvöld; þar var tilkynnt að Ingvar E. Sigurðsson hefði hlotið verðlaun hátíðarinnar sem besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í myndinni O (Hringur) í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar og framleidd af Heather Millard.
O (Hringur) er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur.
Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í haust og hefur verið á ferðalagi um heiminn síðan. Eru þetta þriðju alþjóðlegu verðlaun myndarinnar og er hún einnig komin í forval Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025.