Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Ingó Veðurguð skemmti í afmæli Tómasar stjórnarmanns KSÍ: „Aðeins það besta hjá Tomma“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sjálfur Ingó Veðurguð skemmti af sinni alkunnu snilld í fimmtugsafmæli Tómasar Þóroddssonar, sem er stjórnarmaður KSÍ, fyrir rúmri viku síðan.

Tómas er í hópi þeirra sem skrifaði undir yfirlýsingu stjórnar KSÍ um að staðið sé með þolendum ofbeldis, en eins og alþjóð veit hefur Ingó verið sakaður um mörg kynferðisbrot.

Tómas er veitingamaður á Kaffi Krús á Selfossi auk þess að vera landshlutafulltrúi í stjórn KSÍ; Tómas hélt upp á fimmtugsafmæli sitt um miðjan ágúst síðastliðinn og fékk Ingó Veðurguð til að troða þar upp; sást vel til þess í myndskeiðum á samfélagsmiðlum sem hafa verið í mikilli dreifingu.

Meðal annars dreifði á Twitter myndabndinu Kristján Óli Sigurðsson, sem er reglulegur gestur/sérfræðingur í hinum vinsælu hlaðvarpsþætti Hjörvars Hafliðasonar, Dr. Football. Kristján Óli skrifaði við færsluna:

„Aðeins það besta hjá Tomma á Kaffi Krús.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -