Ingibjörg Íris Davíðsdóttir læknir óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar en hún býr nærri Gaza og heldur að mestu til í sprengjubyrgi í íbúðinni. Hún á fimm ára son sem hún reynir að stappa stálinu í meðan sprengjurnar springa í nágrenninu.
Ingibjörg lýsir hinu ömurlega stríðsástandi í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta er ekkert líf, miklu verra en var í kórónufaraldrinum. Maður kemst ekki einu sinni út úr húsi með barnið. Ég er eins og flest fólk bara heima, nálægt sprengjuskýli, því við höfum ekki nema kannski 15 sekúndur til þess að komast í skjól. Við reynum að gera eins gott úr þessu og við getum heima, en það er erfitt og þetta er ömurlegt ástand. Við erum hrædd og líður ekki vel þegar sírenurnar fara af stað,“ segir Ingibjörg.
Ingibjörg býr ásamt eiginmanni sínum og syni í strandbænum Ashkelon við Miðjarðarhaf, Tæpur fjórðungur eldflauganna frá Gaza hefur lent í Ashkelon og valdið miklu tjóni, dauða og limlestingum, en ein lenti aðeins 200 metrum frá heimili hennar. Heima hjá Ingibjörgu hefur verið útbúið sprengjubyrgi í barnaherberginu. „Við erum mjög mikið þar. Við látum samt ekki á því bera gagnvart drengnum og reynum að stappa í hann stálinu.“

