Samfylkingar- og baráttukonan Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir er ekki sátt við orð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra sem hún lét falla nýverið.
„Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagði í viðtali við Morgunblaðið á dögunum að það væri ekki á dagskrá að leggja á stóreignaskatt, eins og Samfylkingin leggur til að eigi að gera á hreinar eignir umfram 200 miljónir. Katrín sagði enn fremur að óþarfi væri að fara í frekari tekjuöflun þar sem ríkissjóður stæði ágætlega.“
Og því spyr Inga:
„En ef ríkissjóður stendur ágætlega — hvers vegna svelta þá öryrkjar, Katrín?“
Bætir þessu við:
„Ríkistjórn VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur ítrekað fellt tillögur Samfylkingarinnar á síðasta kjörtímabili um hækkun örorku og ellilífeyris, þrátt fyrir loforð stjórnarflokkanna um bætt kjör og samstarfssáttmála ríkisstjórnarinnar. Enn mega öryrkjar og eldri borgarar bíða og biðin eftir réttlætinu hefur verið löng. Í einu ríkasta landi heims.“
Hún segir að „öryrkjum eru allar bjargir bannaðar. Lítið er um störf fyrir fólk með skerta starfsgetu ef það vill vinna. Ef það er í einhverri vinnu, þarf það að þola ósanngjarnar skerðingar. Ef það lendir á örorku á miðju almanaksári, þá gera launatekjur þess fyrri hluta ársins það að verkum að það mætir miklum skerðingum og þarf að draga fram lífið á jafnvel aðeins um 100.000 kr. á mánuði. Slík upphæð dugar ekki fyrir húsnæði einu og sér, hvað þá mat, lyfjum og öðrum lífsnauðsynjum.“
Inga bendir á að „meira að segja þótt fólk hljóti fullar bætur, er það samt með lægri upphæð milli handanna en fólk á atvinnuleysisbótum, sem enginn verður þó saddur af og er í þokkabót tímabundið ástand í lífi launafólks. Er það velferðarsamfélag sem kemur svona fram? Er þetta öryggisnet í reynd, eins og almannatryggingakerfið okkar á að vera?
Svarið er einfaldlega nei. Samfylkingin ætlar að taka á þessu óréttlæti. Við ætlum að bæta almannatryggingakerfið og fjármagna þessar kjarabætur með stóreignaskatti og hærri veiðigjöldum á stórútgerðir. Það er góð og skynsamleg jafnaðarstefna.“

