Fimmtudagur 8. október, 2026
6.8 C
Reykjavik

Inga segir listina hjálpa sér sem sálfræðing: „Náttúran hreinsar hugann“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég er nú fædd og uppalin í Reykjavík en er orðin sveitakerling í dag, ég horfi hér út á túnið á kindurnar með lömbin sín og það er svo friðsælt og yndislegt. Náttúran kallar á mann,“ segir Inga Stefánsdóttir sálfræðingur og myndlistarmaður.

„Ég hef alltaf haft áhuga á myndlist og þegar ég ung þurfti ég að ákveða hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór. Ég var afar volg fyrir að velja myndlistina en svo fór að ég valdi sálfræðina“. Inga rak meðferðarheimili fyrir unglinga í 9 ár sem hún segir að hafi verið mikil en gefandi vinna allann sólahringinn. „Þegar ég hætti þar fannst mér ég hafa allan tíma í heiminum og skellti mér í Myndlistarskólann og tók bókstaflega öll námskeið sem í boði voru“.

Inga segir tímann í myndlistinarskólanum hafa verið afar skemmtilegann. „Síðustu fjögur til fimm árinu hef ég vitað að þetta er það sem ég vil gera. Myndlistin höfðar svo sterkt til mín og hreinsar hugann. Ég er mest að mála náttumyndir en það er aldrei að vita hvað ég mun taka mér fyrir hendur”.

Inga er þó ekki alfarið í myndlistinni því hún er í 70% prósent starfi sem skólasálfræðingur á Snæfellsnesinu og segir listina hjálpa sé í starfi sínu. „Ég er vön mikilli vinnu og finnst ég hafa allann tíma í heimi til að sinna listinni. Ég er svo ánægð og þakklát fyrir að geta hreinsað hugann og náð þessum einstöku tengslum við náttúruna“.

- Auglýsing -

Hún segir huga og sál hreinsast við að mála. „Ég er lánsöm í lífinu að geta sinnt því sem er hjarta mínu næst.”

Sýning Ingu stendur til 17. júní í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar, alla daga milli 13 og 18 og 13 til 17 um helgar.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -