Fimmtudagur 5. mars, 2026
-0.2 C
Reykjavik

Illugi biður um dæmi: „Þeim hefur vissulega tekist að bæta stjórnsýsluna sér til hagsbóta“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rithöfundurinn og fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson gagnrýnir hækkandi launakostnað ráðherra og aðstoðarmanna þeirra sem nú nálgast milljarð. Skrifar hann færslu á Facebook sem vakti athygli lesenda.

Með færslunni deildi hann frétt Kjarnans um launakostnað nýrrar ríkisstjórnar, þ.e.a.s. launakostnað 12 ráðherra og aðstoðamanna þeirra sem mun vera 715 milljónir eftir hækkun.

„Getur einhver bent mér á dæmi þess að hærri laun ráðherra, fleiri ráðherrar og fleiri aðstoðarmenn á hærri launum hafi á EINHVERN HÁTT bætt stjórnsýslu í þessu landi? — Nei, ég hélt ekki.“

Fjölmargir hafa líkað við færsluna og þónokkrir skrifað athugasemdir.

Regína minnist á Drottinn almáttugan.

„Nálgast milljarðinn. Blessaðir bótaþegarnir. Dýrt er Drottnarans orðið.“

- Auglýsing -

Egill bendir á kostnað sem á eftir að reikna.

„Svo koma rafmagnsbílarnir og bílstjórarnir og ŕáðgjafasvindlið og skýrslurnar o.s.frv.“

Bjarni tjáir sig líka.

- Auglýsing -

„Þeim hefur vissulega tekist að bæta stjórnsýsluna sér til hagsbóta.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -