Vangaveltur eru um hvort landshitametið hafi fallið í Fellabæ í dag en þar mældist hitinn 31 gráða í bílahitamæli.
Á vef Austurfréttar í dag er birt ljósmynd frá Óskari A. Hjartarsyni sem sýnir hitamælinn í bíl hans sýna 31 gráðu hita en óvenjuleg hitabylgja er fyrir austan um þessar mundir. Núverandi hitamet var sett árið 1939. Óskar var sem sagt staddur í Fellabæ er hann tók myndina.
Getur verið að Fellabær, sem kannski er þekktastur fyrir Olís sjoppuna sína og Fellabakarí, sé þar með að koma sér á spjöld sögunnar með þessu hitameti?
Fram kemur í frétt Austurfréttar að ekki sé hægt að treysta á nákvæmni í bílamælum, samkvæmt Páli Ágústi Þórarinssyni, veðurfræðingi Veðurstofunnar. Segir hann að allt fari þetta eftir því hvernig bíllinn snýr, hvort hann snúi gegn sólu, hefur hann verið í gangi lengi og fleira sem skekki mælinguna. Mesti hiti sem mælst hefur Austurlandi á mælum Veðurstofunnar er í næsta nágrenni við Fellabæ, á Egilsstaðaflugvelli, 28,4 gráður. Því er ólíklegt að hitametið hafi fallið í Fellabæ í dag.

