Laugardagur 17. október, 2026
9.8 C
Reykjavik

„Í ljósi þeirra storma sem nú geisa í samfélaginu þarf ég að viðurkenna eftirfarandi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Glúmur Baldvinsson, sem skipar oddvitasætið fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn í komandi alþingiskosningum, skrifaði færslu á Facebook síðu sinni þar sem segði að í ljósi þeirra storma sem nú geisa í samfélaginu þurfi hann að viðurkenna eftirfarandi.

Því næst kemur frásögn af kossi sem hann átti með stúlku sumarið 1986.
Lýsir Glúmur því hvernig honum hafi mislíkað kossinn og flúði hann því heim til ömmu sinnar og afa með grátstafinn í kverkunum. Stúlkan var ósátt með flótta Glúms og segist hann nú átta sig á því að þetta hafi verið rangt af sér.

„Ég finn mig því tilknúinn að leysa frá þessari skjóðu og játa sekt mína og íhuga framtíð mína sem gjaldgengur karlmaður í þessu landi. Líklega hef ég einvörðungu um tvennt að velja. Í fyrsta lagi að segja af mér ef ég vissi frá hverju ég ætti að segja mig. Ellegar og í annan stað að flýja land,“ skrifar Glúmur og heldur áfram. „Að lokum verð ég einn að taka hina einu sönnu réttu ákvörðun.“

Þá vill hann biðja alla þá sem færsluna lesa afsökunar en óskar einnig eftir skilningi á þeirri aumu staðreynd að að lokum sé hann bara dauðlegur maður, eins og hann orðar það.

„En eins og amma sagði alltaf þegar ég gerði eitthvað af mér sem barn: hann Glúmur minn var bara í vondum félagsskap.“

Eins og sjá má var færslan opin almenningi en virðist nú ekki lengur vera það.

Samkvæmt Glúmi stendur færslan enn og leiðréttist það hér með.
Hún er þó ekki lengur sýnileg almenningi og segist Glúmur hafa stillt úr „public“ í „friends“. Semsagt, nú geta einungis Facebook vinir Glúms séð færsluna.
Segir hann í athugasemdakerfi Mannlífs að það hafi hann gert vegna þess að últrafemínistar hófu að ásaka ónefnda karlmenn sem hann þekkir ekki um vonda hluti á hans síðu. „Þess vegna er þessi færsla mín einvörðungu fyrir vini mína. En ef einhver hér sem ekki er vinur minn vill sjá hana þá endilega bara að hafa samband 🙂 Takk.“

- Auglýsing -

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -