Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

„Í flóknum heimi kynjatvíhyggjunnar getur fólk kannað kynvitund sína á listrænan og öðruvísi hátt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Transaktífistinn Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir er að gera góða hluti, en hún var á lista breska ríkisútvarpsins yfir hundrað áhrifamestu konur ársins 2019. Ásamt Uglu á listanum voru meðal annars Greta Thun­berg og Alexandria O­casio-Cor­tez.

En nú nýlega kom út í Bretlandi bókin „The Trans Survival Workbook“ eftir Uglu og Fox Fisher, þremur árum eftir að þau gáfu út bókina „Trans Teen Survival Guide,“ sem var ætlað að auðvelda ungu fólki að fóta sig í flóknum heimi kynjatvíhyggjunnar.

Ugla og Fox og nýja bókin.

 

Ugla segir að í nýju bókinni – ólíkt þeirri fyrri – sé áherslan frekar á sjálfsvinnu en beinar upplýsingar og fróðleik.

Kynjafræðingurinn Ugla hefur lengi verið framarlega í réttindabaráttu transfólks; ekki síst sem formaður Trans Ísland.

- Auglýsing -

Hún og Fox Fisher búa saman rétt við suðurströnd Englands, í borginni Brighton.

Um nýju bókina hefur Ugla þetta að segja:

„Hún passar mjög vel samhliða fyrri bókinni sem var meira til upplýsingar og meiri texti og er full af góðum ráðum og ráðleggingum. Þessi bók sem við erum að gefa út núna er miklu meira dagbók eða vinnubók þar sem fólk getur gert alls konar æfingar,“ segir hún og nefnir til dæmis krossgátur og ýmiss konar íhugunaræfingar sem meðal annars skerpa kynvitundina.

- Auglýsing -
Fyrri bók þeirra Uglu og Fox, sem búa í Brighton.

Þau Ugla og Fox lögðu upp í sameiningu að gera bókina sem þau hefðu viljað komast í þegar þau voru unglingar:

„Vegna þess að það hefði hjálpar okkur ótrúlega mikið.“

Ugla nefnir að „bókinni sé þannig ætlað að hjálpa fólki að kynnast sjálfu sér og halda jafnvel utan um kynleiðréttingarferlið ef svo ber undir,“ og segir að „nálgunin er aðeins meira listræn og þetta er miklu persónulegra; þannig að fólk getur kannski kannað kynvitund sína á listrænan og öðruvísi hátt.“

Og bætir við:

„Bókin er í rauninni fyrir alla sem hafa áhuga á að kanna eða kynnast sjálfum sér og kannski kyni sínu aðeins betur; í rauninni fjallar þetta kannski bara um hvernig við upplifum kyn okkar – hvernig við tjáum kyn okkar og hvernig okkur líður best og alls konar annað. Svo ég myndi segja að þetta væri í raun fyrir alla. Sama á hvaða stigi þau eru í sínu ferðalagi eða hvort þau eru trans eða ekki.“

Heimild: Fréttablaðið

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -