Lúsmý er að valda Íslendingum miklum usla og einfaldlega að gera því lífið afar leitt; eðlilega eru margir orðnir ansi þreyttir á þessum fjanda sem herjar á fólk af miklum krafti, en gerir þó engan greinarmun eða stéttarmun á fólki; virðist hata allt fólk alveg jafnmikið, og það ber að virða.
Í færslu á samfélagsmiðli segir Karen Geirs að hún hafi prófað margt í stríðinu við Lúsmý, en ávallt tapað öllum orrustunum hingað til.
En nú kveður við nýjan tón hjá Kareni og hennar fjölskyldu – jákvæðan tón:
„Við fjölskyldan erum öll útbitin af lúsmýinu og hef prófað allskonar húsráð sem virka misilla,“ segir Karen og bætir við:

„En í gær setti ég skál með hvítlauksolíu við opinn glugga – það var logn úti – og ekkert nýtt bit daginn eftir,“ og hljóta margir að fagna þessum tíðindum og án efa munu margir prófa þessa nýju aðferð Karenar, og bendir á árangurinn af tilraun sinni:
„Nokkrar höfðu drukknað í olíunni,“ segir hún og spyr hvort einhver hafi „prófað þetta?“ sem Karen bendir á að sé árangursrík aðferð.
Karen hlýtur góða viðtökur á samfélagsmiðlinum og Ester Inga Óskarsdóttir segir „nei, enn greinilega er þetta þess virði að prófa,“ og bætir við:
„Mér skilst að edik í skál geri sama gagn.“

