Fallegt og afar áhugavert hesthús er til sölu sem Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:
„Hesthús með millilofti við Þokkabakka 6 í Mosfellsbæ.“

„Húsið skiptist í 14 stíur, hlöðu, hnakkageymslu og spónageymslu.“

„Á milliloftinu er baðherbergi með sturtu, björt stofa og kaffistofa með innréttingu.“

„Góð aðkoma er í hlöðu á gafli hússins. Sérgerði er fyrir framan húsið. Samkvæmt upplýsingum frá eiganda þá var eignin mikið endurbyggð árið 2001-2002. Ásett verð er 36 milljónir króna, en hesthúsið var byggt árið 1977 og í því er 1 baðherbergi, sérinngangur og þvottahús.“

Það fer hvorki illa um hesta né menn í þessu hesthúsi. Um það bera myndirnar skýrt vitni.

