Fimmtudagur 8. október, 2026
7.8 C
Reykjavik

Hraunað yfir dugnað Birgittu Lífar: „Mega konur ekki gera NEITT án þess einhver drulli yfir þær?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Svo virðist sem íslenskir karlmenn séu ekki allir sannfærðir um dugnað athafnakonunnar Birgittu Lífar Björnsdóttur, sem oft er kennd við World Class enda dóttir eigenda líkamræktarfeldisins. Að minnsta kosti ekki ef marka má umræðu sem finna má á samfélagsmiðlum eftir fréttir af opnun Birgittu á klúbbnum Bankastræti, þar sem áður var hinn vinsæli skemmtistaður B5.

Undir fréttir af málinu, þar sem því var lýst að Birgitta Líf hafi undanfarið unnið hörðum höndum að opnum klúbbsins, hafa karlar gert lítið úr dugnaði hennar. Páll Þór Ómarsson er einn þeirra en hann segir:

„Athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir unnið hörðum höndum. Held að það séu miklar ýkjur!“

Gunnlaugur Karlsson tekur undir. „Ég stórefast um að þessi prinsessa viti hvað það kallast að vinna við eitthvað með hörðum höndum.“ Og Róbert Benediktsson er á svipuðum slóðum. „World-Class erfingi að leika sér með peninga foreldra sinna sem mokgræða á mesta skítagymmi Íslands.“

Það er Vala nokkur sem vekur athygli á umræðunni með færslu á Twitter. Þar birtist hún ummæli mannanna og spyr:

„Mega konur ekki gera NEITT an þess að það drulli einhver yfir þær?“

Áslaug Birna tekur þar til máls og er sammála Völu. „Minnimáttarkennd, ungri konu gengur betur en þeim og þeir verða að gera lítið úr henni til að líða betur með sjálfa sig,“ segir Áslaug.

- Auglýsing -

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -