Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Hr. Hnetusmjör svarar Sigríði fullum hálsi: „Fyrrverandi ráðherra, já, höfum það á hreinu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Herra Hnetusmjör lætur sér fátt um finnast um gagnrýni Sigríðar Á. Andersen á ferðalagi hans til Englands.

Blaðamaður Vísis hringdi í rapparann þar sem hann er staddur í London. Þegar blaðamaður spyr hvað hann finnist um gagnrýni ráðherrans en leiðréttir sig og segir fyrrverandi ráðherra svarar Hr. Hnetusmjör um hæl. „Fyrrverandi ráðherra, já, höfum það á hreinu. Það kom eitthvað babb í bátinn þarna.“ Á hann þá við afsögn Sigríðar vegna Landsréttarmálsins árið 2019. Herra Hnetusmjör hefur deilt skjáskotum á Instagram með fréttum um ráðherrann fyrrverandi, þar sem fjallað er um Landsréttarmálið þar sem hún braut gegn Mannréttindasáttmála Evrópu og þar með gert íslenska ríkið bótaskylt.

„Mér finnst þetta bara fyndið. Mér finnst alveg eðlilegt að vera að ferðast þegar maður er fullbólusettur og fylgir öllum reglum,“ segir rapparinn við blaðamann.

Segist hann ennfremur ekki taka ummæli Sigríðar inn á sig. „Já, ég er ekki að taka þessi ummæli frá fyrrverandi ráðherra og fráfarandi þingmanni inn á mig,“

Rapparinn, sem réttu nafni heitir Árni Páll Árnason, er staddur í Lundúnum ásamt kærustu sinni til að fagna úskrift stóru systur hans, Söru, sem var að útskrifast úr Derby háskóla með meistaragráðu í afbrotafræði með áherslu á kynferðisbrot gegn börnum.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -