Fimmtudagur 15. október, 2026
5.8 C
Reykjavik

Sérstæð verkefni lögreglumanna: – Kona og köttur hennar í sjálfheldu uppi í tré

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglumenn eru vissuleg ekki öfundsverðir af mörgum þeim verkefnum sem þeir þurfa að taka sér fyrir hendur og eru sum klárlega hættulegri en önnur. Má þar nefna að eltingaleikur við ketti í trjám er ekki á allra færi og hreint ekki hættulaust athæfi. Þess má finna dæmi að lögreglumenn hafi slasast við slíkt klifur. Þó ekki hættulega, blessunarlega.

Björgun gæludýra var reyndar ekki kennd sérstaklega í Lögregluskólanum, en þá kemur hyggjuvitið til skjalanna þegar út í alvöruna er komið. Sjálfsagt má skamma lögreglumenn fyrir að hafa á stundum ekki beitt meiri skynsemi í slíkum aðstæðum, en lögreglumenn eru bara þannig gerðir að þeir vilja bjarga bæði mönnum og dýrum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gaf góðufúslegt leyfi fyrir eftirfarandi frásögnum.

Kona eltir kött

Fyrir nokkrum árum slasaðist lögreglumaður þegar hann einmitt reyndi að bjarga ketti niður úr háu tré, en hjálparbeiðnir af því taginu berast lögreglunni annað slagið. Ein slík kom á borð lögreglu sumarið 2016. Lögreglumenn voru fljótir á staðinn, í ónefndan garð á höfuðborgarsvæðinu, og hugðust bjarga þar ketti niður úr tré.

Á vettvangi blasti hins vegar við afar óvenjuleg sjón, því ekki einasta var kötturinn í sjálfheldu uppi í trénu, heldur var eigandi hans þar líka. Um var að ræða unga konu sem hugðist bjarga kettinum sínum með öllum tiltækum ráðum, en ekki fór betur en svo að hún sat þar jafnföst og blessaður kötturinn og gat sig hvergi hreyft.

- Auglýsing -

Nú voru góð ráð dýr.

Eftir að hafa skoðað málið af mikilli yfirvegun afréðu lögreglumennirnir að gera það skynsamlega í stöðunni og kalla til slökkviliðið og kom það á staðinn með stiga. Skemmst er frá því að segja að í framhaldinu tókst björgun bæði konunnar og kattarins giftusamlega, en þessum degi gleymir konan vafalaust seint.

Hún hefur þó örugglega lært sína lexíu, en kötturinn líklega ekki.

- Auglýsing -

Frækileg björgun Fannars

Kettir eru þó ekki einu dýrin sem lögreglan hefur þurft að koma til hjálpar í gegnum tíðina því árið 2020 barst Neyðarlínuni símtal þar sem greint var frá svansunga, sem var í miklum vandræðum í Læknum í Hafnarfirði. Óttast var að hann kynni að drukkna og var eðlilega brugðist hratt við.

Fannar komin í fang Guðmundar eftir giftusamlega björgun. Mynd: Sjöfn Ýr.

Fremsti sérfræðingur lögreglu í slíkum málum, Guðmundur Fylkisson aðalvarðstjóri, var umsvifalaust kallaður á vettvang og tókst honum, með mjög góðri aðstoð nokkurra vegfarenda, að bjarga álftinni frá dauða.

Um tíma var útlitið tvísýnt enda flaut svanurinn á hvolfi með haus og vængi á kafi, en fætur upp úr.

Nokkur ótti fór um fólk en allt fór þó vel að lokum og giftusamleg björgun var staðreynd. Svanurinn, sem gengur undir nafninu Fannar, var líklega um tveggja ára gamall, en til hans hafði áður sést við gamla Lækjarskóla og greinilegt að eitthvað hafði verið að angra hann.

Fannar var færður til aðhlynningar hjá dýravinum í Kjósinni og er ekki betur vitað en að honum heilsist með ágætum þessa dagana.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -