Miðvikudagur 11. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Hildur varar við kattaníðingi í Norðurmýri: „Hann var með stóra málningarfötu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kona nokkur varar við grunsamlegum manni sem sást elta svartan kött í Norðurmýrinni í morgun. Sumir telja þetta kattarníðinginn sem sást fyrst í hverfinu í janúar.

Hildur Guðbrandsdóttir skrifar greinagóða lýsingu á grunsamlegum manni sem hún sá elta kött og reyna að fanga, inni á Facebook hóp íbúa Norðurmýrarinnar. Segir hún manninn frekar lágvaxinn, með yfirvaraskegg og dökkt, krullað hár, klæddan í bláan mittisjakka. Þá sé hann með skallatungl. Ennfremur segir hún að maðurinn hafi haldið á stórri málningafötu með loki og að hann hafi ferðast um á svörtu hlaupahjóli sem hann hefði sennilega stolið, hann hafi verið það klaufskur á það.

Ein af þeim mörgu sem svara þessum pósti Hildar telur líklegt að maðurinn sé sá hinn sami og níðst hefði á köttum fyrr á árinu, í hverfinu. Sá hafi, samkvæmt sögusögnum flutt svo úr hverfinu yfir í nágrannahverfi. Hann sé mögulega snúinn aftur og haldi uppi uppteknum hætti við að níðast á köttum.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -