Laugardagur 7. mars, 2026
1.8 C
Reykjavik

Hildur: „Tíma­bært að líta björt­um aug­um til framtíðar og opna dyrn­ar að eðli­legu lífi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins, Hild­ur Björns­dótt­ir, vill kall­a eft­ir end­ur­skoðun reglna um sótt­kví í skól­um sem og leik­skól­um borg­ar­inn­ar. Einnig vill Hildur sjá notk­un hraðprófa tek­in til alvarlegrar skoðunar í öll­um skóla­stofn­un­um; sem geta skorið úr um hugs­an­legt smit áður en börn eru send heim, og at­hafna­frelsi fjöl­skyldu­fólks skert með því.

Hildur nefnir að „eðli­legt er að líta til fram­kvæmd­ar í ná­granna­lönd­um, en hvergi er beitt eins hörðum aðgerðum og hér­lend­is, þrátt fyr­ir fá­dæma góða þátt­töku í bólu­setn­ing­um,“

Þá bend­ir Hildur á að skóla­stjórn­end­ur hafi lýst yfir þungum áhyggj­um af nú­ver­andi fyr­ir­komu­lagi og mögulegum áhrif­um þess á skóla­starfið sem er að hefjast. Hildur vill meina að börn og ung­menni hafi farið verst út úr far­aldr­in­um; þau hafi mátt þola mikla rösk­un á hluta skóla­göngu sinn­ar.

„Jafn­framt hafa Sam­tök at­vinnu­lífs­ins lýst áhyggj­um af nú­ver­andi fyr­ir­komu­lagi sótt­kví­ar, og þeim stór­kost­legu tak­mörk­un­um sem fyr­ir­komu­lagið mun óhjá­kvæmi­lega hafa á skóla­hald í vet­ur, með til­heyr­andi raski fyr­ir fólk, fjöl­skyld­ur og vinnustaði þeirra. Á þessu stigi máls er erfitt að greina þá al­manna­hags­muni sem rétt­lætt geta svo víðtæka beit­ingu sótt­kví­ar,  enda veru­legt inn­grip í hvers­dags­legt líf fólks.“

Hild­ur ljær máls á því að í ná­granna­lönd­um okkar séu öll beitt væg­ari úrræðum en hér á landi og beini því til fólks að fara var­lega;  verndi viðkvæma hópa; reyni eft­ir fremsta megni að forða dag­legu lífi barna frá nei­kvæðum áhrif­um Covid 19:

„Við höf­um staðið okk­ur vel í bar­átt­unni við veiruna. Þátt­taka í bólu­setn­ing­um hef­ur verið góð og bólu­efn­in hafa skilað þeim mik­il­væga ár­angri að draga veru­lega úr al­var­leg­um veik­ind­um. Það er tíma­bært að líta björt­um aug­um til framtíðar og opna dyrn­ar að hinu eðli­lega lífi.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -