Sunnudagur 8. mars, 2026
1.7 C
Reykjavik

„Hernaðurinn gegn einkarekstrinum er hafinn og skaðar einungis almenning og leiðir til óréttlætis“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Lífið minnir okkur sífellt á mikilvægi þess að búa við friðsamt yfirvald. Friðsamt yfirvald er happafengur hverjum manni, hvort sem er á okkar tímum eða annarra.,“ segir Sigurbjörn Sveinsson læknir, og bætir við:

„Það var kallað „Hernaðurinn gegn landinu“ á síðustu öld þegar því var andmælt að viðkvæm náttúra landsins væri lögð að fótum áforma um virkjanir og stórfelld hervirki nánast í heimahögum almennings.“

Sigurbirni finnst „margt fara saman með viðhorfum valdsmanna heilbrigðisstjórnarinnar til verkefna sinna á okkar dögum og þeirra, sem eiga bágt með að skilja mikilvægi valds síns í þágu friðar og framfara; valdinu er beitt í þágu stjórnlyndis og pólitískra langtímasjónarmiða. Svo er grautnum í þessari skál blandað saman við ranga meðferð tungumálsins, þannig að boðskapurinn verður í raun að falsfréttum, röngum eða öngvum sannleika.“

Hann nefnir að „læknisfræðin hefur blómstrað í landinu bæði á liðinni öld og þessari. Þrátt fyrir allt. Framfarir í læknisfræði hafa verið bornar uppi af læknum eðli málsins samkvæmt og hið ljúfa hlutskipti lækninganna fallið í þeirra skaut. Í læknanna garði hefur vaxið „viðkvæmur norðurhjaragróður“ og „gnægð smárra blómjurta“ eins og skáldið segir. Þjónusta lækna eins og við þekkjum hana á okkar dögum hefur þróast í þeirra höndum; ýmist á stofum þeirra, það er í einkarekstri, eða á stofnunum ríkisins eða einkaaðila. Meirihlutavaldið í stjórnmálum hefur haft góðan skilning á þessu fram til þessa,“ segir hann og heldur áfram:

„Mér sýnist hins vegar hafa orðið nokkur breyting hér á og hafa önnur skilaboð borist frá stjórnarráðinu á síðustu árum,“ og vill Sigurbjörn meina að „hernaðurinn gegn einkarekstrinum er hafinn.“

Hann bendir á að atburðir síðustu missera „sýnast mér styðja þessa skoðun vel. Samningsleysi sérfræðilækna; ömurleg brotlending krabbameinsgreiningar kvenna; útflutningur liðskiptaaðgerða – hallarekstur hjúkrunarheimila og fleira í þeim dúr eru allt veigamiklir þættir í þeirri miðstýringaráráttu sem nú ríður húsum í heilbrigðisráðuneytinu og tengdum stofnunum.“

- Auglýsing -

Sigurbjörn segir að þeir sem styðja vilja við einkarekstur lækna í þágu almennings séu sakaðir um einkavæðingaráráttu, sem er hreint „skrök“ eða „falsfréttir“. Og að „enginn kallar eftir því að ríkið hætti að bera ábyrgð á heilbrigðisþjónustunni eins og nú er. Það gerir ríkið með því að reka þjónustuna sjálft eða fá aðra til þess. Ef ríkið kýs að hætta tiltekinni þjónustu, þannig að almenningur verður að kaupa hana fyrir eigið fé og án íhlutunar sjúkratrygginganna, er um einkavæðingu þjónustunnar að ræða. Á meðan ríkið heldur verkefnunum hjá sér og lætur fyrirtæki í sinni eigu sinna þeim eða semur við aðra aðila um það, er tómt mál að tala um einkavæðingu heilbrigðiskerfisins.“

Hann nefnir að „einkavæðing heilbrigðiskerfisins er það þegar ríkið gefur frá sér lögbundin verkefni sín og tekjustofna, sem undir þeim standa, og lætur einkaaðilum eftir að fjármagna heilbrigðisþjónustuna og hrinda henni í framkvæmd. Um það eru fá dæmi hér á landi.“

- Auglýsing -

Sigurbjörn beinir spjótum sínum að Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og segir að það væri henni „hollara og frekar í þágu almannahagsmuna, að finna flöt á sambærilegri verðlagningu læknisverka, sem unnin eru á sjúkrastofnunum í ríkiseigu og hjá stofum eða fyrirtækjum lækna. Með því ætti ráðherrann val um þjónustu fyrir almenning sem fullnægði gæðakröfum við viðunandi verði. Með því myndi og styrkjast staða ráðherrans til að mæta þörfum almennings. Vanmáttur ríkisins að mæta þörfum okkar og kröfum er einmitt helsta orsökin fyrir þrýstingi á að þegnarnir finni sínar eigin lausnir fyrir eigin reikning.

Hernaðurinn gegn einkarekstrinum skaðar einungis almenning og leiðir til óréttlætis.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -