Fimmtudagur 16. júlí, 2026
11.3 C
Reykjavik

Heimir Jónasson látinn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Heimir Jónasson lést í dag, 53 ára að aldri. Hann greindist með taugahrörnunarsjúkdóminn Corticobasal Degeneration (CBGD) í janúar árið 2018.

Heimir Jónasson

Eftirlifandi eiginkona Heimis, Berglind Magnúsdóttir, greindi frá andláti hans í færslu á Facebook. Heimir skilur eftir sig þrjú börn á aldrinum 14-23 ára.

„Þú ræður ekki hvað kemur fyrir þig en þú ræður hvernig þú tekst á við það,“ sögðu hjónin í viðtali við Fréttablaðið í júlí árið 2018, og sögðu að lífsviðhorfið væri lykilatriði.

Vinir Heimis stofnuðu styrktarsjóðinn Traustur vinur í því skyni að taka við og halda utan um framlög vina hans og velunnara. Samnefnd vefsíða var einnig opnuð þar sem „ætlunin er að auðvelda þér að leggjast á árarnar með okkur í stuðningi við þetta góða fólk,“ eins og segir á heimasíðunni.

Heimir var ráðinn framkvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs árið 2016, hann starfaði áður sem  dagskrárstjóri Stöðvar 2 og einnig sem ráðgjafi í auglýsinga- og markaðsmálum og þjónustaði erlendar fréttastofur og kvikmyndafyrirtæki á ferð um landið.  Árin 2011-2016 starfaði hann sem framleiðandi og markaðsráðgjafi fyrir Íslensku auglýsingastofuna og kom að mörgum verkefnum á svið ferðamála í tengslum við Inspired by Iceland og Icelandair ásamt því að starfa sem þjálfari hjá Dale Carnegie.

Mannlíf sendir ættingjum og vinum Heimis innilegar samúðarkveðjur, traustur vinur er fallinn frá.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -