Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Heimili Láru verið ítrekað eggjað og baunað í Langholtshverfi: „Þetta er hræðilegt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hús nokkurt í Langholtshverfinu í Reykjavík hefur ítrekað orðið fyrir orrahríð eggja og bakaðra bauna.

Lára, meðlimur í hópnum Langholtshverfi – 104 á Facebook, segir frá þessari óskemmtilegu aðkomu og lýsir eftir vitnum. Bæði eggjum og Heinzbaunum hefur verið kastað í hús Láru í tvígang í vikunni. Við skulum gefa henni orðið:

„Við höfum orðið fyrir leiðinlegu aðkasti en tvisvar í vikunni var kastað á húsið eggjum og heinzbaunum. Þetta er hlið sem snýr að götu, Laugaráveg. Ef einhver hefur orðið vitni að þessu þá vinsamlega sendið mér pm.“

Láru var í athugasemd við færsluna, bent á að tilkynna þetta til lögreglu sem hún segist hafa gert. Henni hafi verið sagt að þetta sé gæti verið nýstárleg aðferð innbrotsþjófa við að athuga hvort íbúar séu heimavið. Ef óskapnaðurinn er ekki þrifinn af veggjum og gluggum hússins, gæti það verið vísbending um að enginn sé heima og því sé hægt að brjótast inn í húsið.

Auður skrifar athugasemd og spyr hvað sé að koma fyrir yndislega hverfið þeirra en fær þá andsvar þar sem henni er bent á að svona hafi þetta verið um árabil, fólk hafi sést á nóttunni í öryggismyndavélum, takandi í hurðarhúna og fara inn í bíla.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -