„OJJJJJJ, mamma, hún er með kúkapoka!“, sagði lítið barn við mömmu sína þegar Heiða fór í sund með stómapoka. Hún rekur þetta leiðinlega atvik á Facebook síðunni Mæðratips.
Eins og margir sólþyrstir Íslendingar fór Heiða í sund nýlega. Hún er með stomapoka og er stolt af honum, enda bjargaði hann lífi hennar. Pokinn er vel festur við líkamann og það glittir í hann undan uppháum sundbuxum. Heiða tók buxurnar aðeins niður til að sóla sig þegar telpan snýr sér að mömmu sinni og kallar ofangreinda setningu yfir sig. Heiða segir að þarna hafi móðurinni gefist gott tækifæri til að fræða barnið um að sumir þyrftu á svona að halda og það væri bara allt í lagi.
Heiða er sár yfir viðbrögðum móðurinnar; sem svaraði: „Já, komum okkur upp úr áður en það verður allt í kúk”. Heiða segist vita vel að lítil börn hafi engan filter og segi hvað það sem þeim komi í hug en það sé fullorðna fólksins að fræða þau.
„Ég vona innilega að sem flestir lesi þetta og fræði börnin sín um að það eru allir mismunandi. Sumir eru já með svona kúkapoka og þar er bara allt í lagi”.

