Sunnudagur 8. mars, 2026
1.7 C
Reykjavik

Haraldur ólst upp í sárri fátækt, drakk stíft og missti allt í hruninu:„Óveðurskýin hrönnuðust upp“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Haraldur Ingi Haraldsson skipar fyrsta sæti a framboðslista Sósíalista í Norðausturkjördæmi. Hann átti góða og ástríka æsku, þrátt fyrir að foreldrar hans hafi verið bláfátækir. Haraldur missti allt sitt í hruninu og tókst á við eigin fíknivanda.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðtali við sósíalistaforingjann inni á síðu Sósílistaflokksins.

„Ég var glaðsinna ungur maður. Hafði innilega gaman af skemmtanalífinu. Heillaður af töfrum hins kynsins. Og auðvitað var áfengi alltaf við höndina – það tilheyrði jú – ekki satt?

Hélt með indjánunum

Það er engin tilviljun að Haraldur hefur gengið til liðs við Sósíalistaflokkinn því krókurinn beygðist snemma í þá átt að berjast fyrir réttindum þeirra kúguðu.

„Ég átti góða og ástríka æsku heilt krakkastóð á Syðri-Brekkunni á Akureyri að leikfélögum. Það var einmitt þar sem ég tók líklega mína stærstu pólitísku ákvörðun. Stóru strákarnir í hópnum höfðu komist yfir nýjar og afhjúpandi upplýsingar og eftir mikla umhugsun tók ég þá stóru ákvörðun að hætta að halda með kábojum og fara að halda með Indjánum. Sú ákvörðun að halda með þeim kúgaða sem berst fyrir réttindum sínum gegn ofurefli er enn þann dag í dag grunnurinn í minni pólitísku sannfæringu,“ segir Haraldur.

Brennivínið tók völdin

- Auglýsing -

Á meðan Haraldur var ungur drakk hann stíft og lengi vel gekk það ágætlega, þannig hann var sjaldnast til vandræða og skemmti sér vel að eigin sögn. Æskuvinur hans hafði það eitt sinn á orði að það væri nánast eins og Haraldur væri byggður fyrir áfengi.

„En það er djúp speki í þessari litlu setningu „fyrst drekkur þú úr flöskunni og svo drekkur flaskan úr þér“ Og það gerðist í mínu tilviki eins og svo margra annara. Fíkn er eitt af þeim fyrirbærum sem sviftir manninn frelsi sínu. Það er ekki einungis líkamlega þörfin sem er orðin til staðar fyrir eiturefnið alkóhól heldur er það hin andlega brenglun sem á sér stað þar sem fíkillinn telur sér trú um að allt sé í lagi og ákvarðanir hans draga æ meira dám af því að dómgreindin er skert.

Þetta slampaðist skítsæmilega áfram enda alkóhólistinn slunginn í blekkingarleiknum. En óveðurskýin hrönnuðust upp. Það voru að koma kringumstæður þar sem úr hófi ölkærum einstakling, sem flestum líkaði vel við, gat ekki logið sig út úr. Það var að koma hrun.“

- Auglýsing -

Missti allt í hruninu

Haraldur upplifði algjört hrun. Hann missti allt sitt. „Atvinnuleysi er svo sannarlega böl. Það étur einstaklinginn upp að innan. Allt í samfélaginu miðast við að ég og þú stöndum okkar plikt við lánardrottna. Og þegar atvinnuleysið ber að dyrum þá missum við þetta viðkvæma jafnvægi. Það er ótrúlega stuttur tími þar til hyldýpið fer að blasa við. Ógreiddu reikningarnir hrúgast upp og maður stendur frami fyrir því að það þurfa ekki nema 2-3 afborganir af húsinu að fara i vanskil að bankinn taki öll ráð í sínar hendur. Allt þetta kom fyrir mig og mína fjölskyldu. Kvíði, stöðugt örvæntingarfyllri ráð til að ná upp á yfirborðið, uppgjöf, sífellt meiri drykkja og ofsa bjartsýni á lausnir. Allt þetta í einu í æðisgengni rússíbanareið upp og niður geðsveifluna.“

Haraldur segir að aðgerðir stjórnvalda eftir hrun hafi aðeins frestað niðurstöðunni og það hafi verið brennuvargarnir sem stóðu uppi sem sigurvegaranir. Eftir hrunið stóð hann frammi fyrir tveimur kostum: Að halda lengra áfram inn í myrkrið eða breyta lífi sínu.

„Ég fékk aðstoð fagmanna til að takast á við fíknina, fór í meðferð. Við skyldum, eða réttara sagt, konan gafst upp á mér og fór. Svona gerist aldrei án þess að hafa átt sér sársaukafullan aðdraganda og langan úrvinnslutíma sem einnig er býður allskyns hættum heim svo sem sjálfsvorkunn og þunglyndi. Ég stóð því frammi fyrir vandamáli sem ég mundi endanlega brotna fyrir eða sigra.

Og þá bitru reynslu tek ég með mér núna þegar ég býð fram krafta mína sem fulltrúi fólks í stjórnmálum.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -