Þriðjudagur 10. mars, 2026
2.8 C
Reykjavik

Haraldur læknir um Áslaugu Örnu: „Mjög óábyrgt af yfirmanni almannavarna að vera með þennan áróður“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Heimilislæknir sem er kominn á eftirlaun, Haraldur Óskar Tómasson, lét skrá sig sem bakvörð í upphafi Covid 19 faraldursins; til að aðstoða við þau mörgu verkefni sem sinna þurfti vegna veirunnar, en þetta kemur fram í frétt DV.

Haraldur var í fríi í sumar en núna í haust var aftur leitað til hans þegar verkefnin hrúguðust upp og mjög erfitt var að finna mannskap.

Hann er nú flesta daga í úthringiveri Covid-göngudeildarinnar; tekur þátt í að fylgja eftir sjúklingum sem hafa greinst með veiruna og eru í einangrun:

„Ég hef orðið var við að það er töluvert af óbólusettu fólki sem er að veikjast. Mikið af þeim eru erlendir verkamenn sem eru fluttir hingað inn til skemmri tíma vegna vinnu. Þeir eru meðal þeirra sem hafa verið að veikjast mest hér.“

Haraldur nefnir að hann unnið þarna áður en bólusetningarnar komu til sögunnar, og þá hafi verið fleiri sem veiktust alvarlega; segir að enn séu margir að veikjast og álagið mikið á spítalanum:

„Ég er auðvitað bara starfsmaður á plani. Það er erfitt að manna þessar stöður,“ segir hann sem vill leggja sitt af mörkum þó hann sé kominn á aldur; situr við að jafnaði fjóra til fimm klukkutíma á dag og finnst það nóg.

- Auglýsing -

Haraldur er afar ósáttur við málflutning Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, og Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ráðherra ferðamála, en báðar hafa talað fyrir því að minnka takmarkanir:

„Mér finnst mjög óábyrgt af yfirmanni almannavarna að vera með þennan áróður,“ segir hann og vísar þar til Áslaugar Örnu:

„Þær eru auðvitað undir þrýstingi frá hagsmunaaðilum og það getur maður fengið í bakið.“

- Auglýsing -

Hann bendir á að vissulega séu óbólusettir erlendir verkamenn sem koma hingað að vinna til skamms tíma skimaður á landamærunum, eins og allir aðrir, og mikilvægt sé að halda í þær takmarkanir:

„Það er nauðsynlegt að við höldum því áfram. Ég var nýlega í sambandi við fjóra Ameríkana þar sem þrír voru bólusettir og einkennalausir en einn með væg einkenni. Þeir voru hins vegar allir með Covid og það greindist vegna þess að þeir voru skimaður á landamærunum. Án þessara takmarkana hefðu þeir fengið að fara út í samfélagið og dreifa þar smitinu. Sóttvarnalæknir leggur áherslu á að þessum skimunum sé haldið áfram og því er ég alveg sammála,“ segir Haraldur.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -