Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Hannes keypti höll: Verðið var 165 milljónir – Sjáið myndirnar!

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Landsliðsmarkmaðurinn frábæri í fótbolta, og leikmaður Vals, Hann­es Þór Hall­dórs­son, og eig­in­kona hans, Halla Jóns­dótt­ir, hafa keypt glæsilega fasteign við Sævarland 20 í Foss­vogi, sem er innarlega í götunni; rétt við frábært úti­vist­ar­svæði sem aðskil­ur Sæv­ar­land og Ljósa­land.

 

Nokkuð ljóst er að Hannes er vel „múraður“ eftir langan og glæsilegan feril sem enn sér ekki fyrir endann á – sem betur fer – því húsið var sett á litlar 165 „kúlur“ – en mjög líklegt verður að teljast að verðið hafi verið enn hærra, því mikil eftirspurn var eftir þessu glæsilega húsi.

- Auglýsing -

Það er vel skiljanlegt að Hannes og Halla hafi heillast af „höllinni“ því hún er gríðarlega flott; allt val á inn­rétt­ing­um, gól­f­efn­um og stíl og mörgu fleira er alveg sér­stak­lega vel heppnað.

Þá er garður­inn við húsið mjög fallegur.

- Auglýsing -

Þess má geta að húsið var algjörlega tekið í „nefið“ árið 2007.

Hann­es og Halla eru ekki að fara langt því þau búa í Ljósalandi – sem er steinsnar frá nýja húsinu – og þau geta í raun skokkað með búslóðina yfir á nýja glæsilega heim­ilið sitt sem þau fá afhent í haust.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -