Laugardagur 14. mars, 2026
-1.7 C
Reykjavik

Hanna: „Örlagagyðjurnar gáfu gjöf – kona steig fram og staðfesti það sem ég hef sagt og skrifað“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Í sumar þegar ég las frásögn Önnu Maríu um hópnauðgun sem hún varð fyrir, gerðist eitthvað inní mér,“ segir Hanna Björg Vilhjálmsdóttir sem vakið hefur mikla athygli fyrir gagnrýni sína á KSÍ varðandi meint ofbeldi landsliðsmanna og þöggun KSÍ. Hanna sagði sögu sína í Kvöldviðtali Mannlífs nýlega sjá hér.

„Þetta var frásögnin sem fyllti einhvern mæli hjá mér ef svo má segja. Hvernig gerendur höfðu ekki bara komist upp með viðbjóðslegt ofbeldi – heldur voru líka dáðir og dýrkaðir. Ég fór í vegferð og hugsaði ekki um valdið sem ég fór gegn.. Ég lét hjartað ráða för,“ segir Hanna Björg sem fékk góða afmælisgjöf:

„Í gær átti ég afmæli og það er eins og örlagagyðjurnar hafi ákveðið að gefa mér gjöf – kona steig fram og staðfesti það sem ég hef sagt og skrifað og valdið hafði véfengt og afgreitt sem dylgjur.“

Hanna Björg er sátt:

„Ég átti dýrðlegan afmælisdag í mínu ástkæra starfi og með dýrmætu fjölskyldunni minni.

Takk fyrir allar óskirnar, hvatninguna og fallegu orðin – allt þetta fer beint í hjartað – sem ræður för.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -