KSÍ segir það ekki rétt að lögmaður á vegum sambandsins hafi boðið þolanda ofbeldis af hálfu landsliðsmann í knattspyrnu þagnarskyldusamning gegn bótagreiðslu.
KSÍ sendi frá sér áðan tölvupóst þar sem meðal annars þetta kom fram:
„Í kjölfar viðtals við Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur í kvöldfréttum RÚV í kvöld, vill KSÍ taka skýrt fram að það var ekki lögmaður á vegum KSÍ sem hafði samband við Þórhildi og bað um þagnarskyldu í umræddu máli.“
Eins og áður hefur komi fram á mannlif.is þá lýsti Þórhildur Gyða í viðtalinu að í kjölfar atviksins hafi faðir hennar sent stjórnendum KSÍ tölvupóst þar sem hann greindi frá ofbeldinu. Í kjölfarið hafi að sögn Þórhildar lögmenn haft samband við hana og boðið henni á fund hjá KSÍ.
Eftir frétt kvöldsins sendi aðgerðahópurinn Öfgar fjölmiðlum yfirlýsingu þar sem hópurinn skorar á Guðna Bergsson, formann KSÍ, að láta af störfum.
„Nú eru eflaust mörg hugsi eftir Kastljós gærdagsins og fréttatíma kvöldsins þar sem formaður KSÍ varð uppvís að því að segja ósatt. Formaður KSÍ biðst velvirðingar á að hafa ekki sagt satt og rétt frá. Hvar er afsökunarbeiðnin? Af hverju bað hann Hönnu Björgu ekki afsökunar á að hafa sagt hana ljúga? Af hverju er hann ekki búinn að biðja þolendur afsökunar? Þegar orð eins og þagnarskyldusamningur koma upp þá spyr fólk sig eflaust, „hvers vegna þagnarskylda?“ Hver er ástæðan fyrir því að slíkir samningar tíðkist innan KSÍ? Nú hlýtur Guðni að vera að íhuga það alvarlega að segja af sér sem formaður KSÍ og við skorum á hann að gera það. Það sjá öll í gegnum öll vel meintu (og vel sömdu) orðin sem hann lét falla í fjölmiðlum því það voru bara innantóm orð.“
Öfgar vísa þarna til þess að Guðni sagði í Kastljósi í gær að KSÍ hafi ekki borist formlegar tilkynningar um kynferðisofbeldi af hálfu landsliðsmanna í fótbolta. Hann sagði síðan í kvöldfréttum RÚV í kvöld að þau orð hafi verið mistök.
„Ég gerði það eftir bestu vitund. Mig minnti að þetta brot hefði verið ofbeldisbrot og ekki af kynferðislegum toga. En miðað við það sem þú sendir á mig og ég las svo yfir þá sé að svar mitt var ekki nákvæmt og í raun og veru ekki rétt miðað við þessa atvikalýsingu. Og ég biðst velvirðingar á því að sjálfsögðu,“ sagði Guðni í samtali við RÚV í kvöld.

