Sunnudagur 8. mars, 2026
1.7 C
Reykjavik

Hallgrímur: „Við sitjum uppi með heilbrigðiskerfi í rúst og auðmennirnir græða sem aldrei fyrr“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

 

„Við viljum endurkomu hins eðlilega lífs“ „hrópa margir þessa dagana. En verðum við ekki að vera þolinmóð og skynsöm svo það megi takast?“, ritar Hallgrímur Hróðmarsson framhaldsskólakennari, en hann er þekktur fyrir að hafa skoðanir á samfélagi okkar og er alls ófeiminn að tjá sig um þær.

Hann bætir við:

„Á dögunum hittist hluti ráðherranna úti á landi til að setja nýjar reglur um sóttvarnir. Það var ljóst, eftir að sérfræðingarnir okkar höfðu skilað tillögum sínum um nýjar varnir, að grípa þarf enn einu sinni til áhrifaríkra og harðra aðgerða. Það sér hver heilvita maður að nú þarf að bregðast skjótt við – af fullri ábyrgð og hörku. En ferðaþjónustan – maður – hún er lífæð þjóðarinnar – maður sker ekki á lífæðina! Hvaða gagn er af því að mála Ísland fagur rautt á heimskortinu?“

Hallgrímur segir að „ráðherrarnir eru einungis misvitrir leikmenn – eða er kannski einn þeirra dýralæknismenntaður? – Ég man það bara ekki. Á að treysta misvitrum leikmönnum til að ákvarða hvort hér verði einn eða tveir metrar á milli manna? Á að treysta misvitrum leikmönnum til að ákvarða hve margir mega flykkjast saman í ákveðnu rými? Á að treysta misvitrum leikmönnum til að ákvarða hvaða sóttvarnir skuli gilda á landamærunum eða hvort við eigum yfir höfuð að hleypa ferðamönnum inn í landið – ferðamönnum sem nú flykkjast til eyjunnar okkar af því að ástandið á að vera svo gott hér?“

Hallgrímur telur það „vægast sagt hneyksli að forráðamenn ferðamála í landinu tali nú um að ríkisstjórnin hafi „gengið á bak orða sinna“ og vilji nú bara loka öllu á ný; á að treysta misvitrum leikmönnum til að ákvarða opnunartíma veitinga- og öldurhúsa? Nú hefur það sýnt sig að margur landinn hagar sér eins og gleðifylltar kýr sem hleypt er út á vorin. Munurinn er bara sá að kýrnar sparka kannski óviljandi í hver aðra – það eru öfgafyllri viðbrögð sem margur landinn sýnir í „frelsinu.““

- Auglýsing -

Og segir að „því ver reynast heimskra manna ráð sem fleiri koma saman.

Margir stjórnmálamenn hafa gagnrýnt skort á samráði – ráðherrarnir ákvarða hvað eigi að gera og engu má hnika til þó skynsamar tillögur komi fram. Nema þá þegar næstu aðgerðir eru kynntar. Þá koma þessir sömu ráðherrar fram með þessar sömu tillögur ofurlítið breyttar í farteskinu. Þeir glotta í laumi og hugsa með sér „af skynsemi okkar datt okkur þetta í hug á undan ykkur – og svo erum það við sem ráðum.“ Þetta er eins og sandkassaleikur barna í leikskóla.“

Hann segir að þegar við skoðum „afleiðingar samráðsins í stjórninni á þessum fræga fundi á landsbyggðinni þá verður maður að segja að „samráðið“ var í skötulíki; Katrín varð að beygja sig – hún réði ekki við „villikettina“ í Sjálfstæðisflokknum. Hefði samráð allra flokka á þingi orðið heilladrýgra ef hópurinn hefði verið stærri sem stóð að tillögunum? Af hverju eru fræðimennirnir ekki alfarið látnir ráða ferðinni? Er það af því að þessir misvitru ráðherrar vilja fá rauða rós í hnappagatið?“

- Auglýsing -

„Og undir væng valsins þrífast sníkjudýrin. Bjarni Ben hefur svo til einn ráðið ferðinni í í aðgerðarpökkum ríkisstjórnarinnar til bjargar efnahagsmálum þjóðarinnar. En hann er bara leiksoppur þrýstihópa auðmanna sem allt eiga í landinu okkar – eða ættum við að orða það þannig að hann sér um sína. Og hans fólk eru ekki fátækir launamenn og ekki heldur mörg smáfyrirtækin í landinu. Mörg fyrirtæki stór og meðalstór hafa rakað til sín milljónum á milljónir ofan með hjálp Bjarna í faraldrinum; mörg fyrirtæki sem borgað hafa „eigendum“ sínum tugi milljóna í arð undanfarin ár og eiga digra varasjóði skammast sín ekki að sníkja pening frá hinu opinbera – frá almenningi í landinu. Sem betur fer eru mörg fyrirtæki á Íslandi það vel stödd að þau sækja ekki um ölmusu frá ríkinu. Og einnig eru mörg fyrirtæki á Íslandi sem skila peningunum aftur þegar þau átta sig á að þau hafa ekki þörf fyrir þá.“

„Mér þykir vænt um fólk sem er og var í VG, og mér þykir vænt um stefnu VG.

Þó flokkurinn hafi komið einhverju að sínum sjónarmiðum í framkvæmd á kjörtímabilinu þá stendur það upp úr að við sitjum uppi með heilbrigðiskerfi í rúst og auðmennirnir græða sem aldrei fyrr. Ef núverandi ríkisstjórn heldur velli þá er allt útlit fyrir það að almennir launþegar landsins verði látnir borga mikinn meirihluta af þeim lánum sem við höfum þurft að taka.“

Heimild: kjarninn.is

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -