Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Halldór vill afglæpavæða: „Heilbrigðisráðherra lagði fram sama frumvarp og Píratar sem dó í nefnd“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Píratinn Halldór Auðar Svansson segir að „afglæpavæðing vímuefna er mikilvægt þjóðþrifamál sem er samt nákvæmlega þannig mál að það fer ekki í gegn nema með afgerandi stefnu og áræðni.“

Bætir þessu við:

„Annars sigrar bara afturhaldið sem óttast breytingar. Það sem gerðist í þessu máli á síðasta kjörtímabili var að stjórnarflokkarnir felldu frumvarp Pírata en komu með miklar yfirlýsingar um að þau ætluðu sér að vinna þetta almennilega sjálf,“ segir Halldór og bendir á að  „heilbrigðisráðherra lagði svo fram nánast sama frumvarp og Píratar en það dó í nefnd. Þannig var miklum tíma sóað í raun ekkert og veiku fólki sem líður fyrir refsistefnuna færð falsvon sem var svo hrifsuð af því.“

Þetta er í sjálfu sér ekkert flókið mál, snýst einfaldlega um að fella niður refsiheimild. Fólk sem vill flækja þetta mun samt hins vegar alltaf finna leiðir til að flækja það og þær flækjur verða ofan á nema það sé sett skýrt niður á blað að það eigi ekki að flækja það,“ segir Halldór og endar á þessum orðum:

„Afglæpavæðingu – ekkert kjaftæði.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -